Líknardrápum fjölgar í Hollandi Þorgils Jónsson skrifar 24. september 2013 08:39 Holland er eitt fárra ríkja í heiminum sem leyfir líknardráp með lögum. Slíkum tilfellum fjölgar ár frá ári. NordicPhotos/AFP
Líknardrápum í Hollandi fjölgaði um þrettán prósent í fyrra frá árinu áður að því er kemur fram í árlegri skýrslu frá nefndinni sem heldur utan um þessi mál. Alls völdu 4.188 að skilja við með hjálp læknis í fyrra, en þetta er sjötta árið í röð sem fjölgun verður í þessum hópi. Líknardráp voru leyfð með lögum í Hollandi árið 2002, til að hægt væri að binda enda á kvalir dauðvona sjúklinga en frá 2006, þegar tæplega 2.000 völdu þessa leið, hefur tilfellunum fjölgað ár frá ári. Nú er svo komið að þjú prósent allra dauðsfalla í Hollandi ár hvert er vegna líknardauða, en flest tilfellin eru vegna veikinda tengdum krabbameini. Nefndin segir í skýrslu sinni að erfitt sé að geta sér til um hvers vegna líknardrápum hafi fjölgað. Flestir telji þó að aukin meðvitund um líknardráp og samfélagsleg viðurkenning, bæði meðal lækna og sjúklinga spili þar inní. Líknardráp eru afar umdeild um heim allan og hafa sjúklingar staðið í langvinnum málaferlum til að fá viðurkenndan rétt sinn til þess að fá aðstoð til að binda enda á eigið líf. Líknardráp er meðal annars leyft með lögum, í einhverri mynd, í Hollandi, Belgíu, Lúxemborg og Sviss auk þess sem þrjú ríki Bandaríkjanna, Oregon, Washington og Vermont, hafa leyft slíkt.
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira