Framkvæmdir hafnar við Hjartagarðinn Kristján Hjálmarsson skrifar 24. september 2013 11:00 Verktakar vinna nú hörðum höndum að því að loka svæðinu. Mynd/Vilhelm
Framkvæmdir eru hafnar á Hljómalindarreitnum, hinum svokallaða, Hjartagarði, en fyrirhugað er að reisa 142 herbergja hótel þar. „Við byrjuðum að loka svæðinu í síðustu viku og vonumst til að fyrstu teikningarnar verði samþykktar í dag,“ segir Pálmar Harðarson, talsmaður Þingvangs ehf. sem á og stendur fyrir framkvæmdum við Hljómalindarreitinn. „Það er búið að leggja teikningarnar nokkrum sinnum fram en það hafa alltaf komið einhverjar athugasemdir.“ Að sögn Pálmars tekur það nokkra daga til viðbótar að loka svæðinu.Töluverð mótmæli urðu vegna fyrirhugaðra framkvæmda á reitnum. Pálmar segir að eftir að Þingvangur keypti reitinn hafi eigendur félagsins ekki fundið fyrir mótmælum. „Við keyptum tilbúið deiliskipulag og vinnum bara eftir því. Við höfum ekki fundið fyrir neinu nema það var kveikt í húsinu við Hverfisgötu,“ segir Pálmar. Niðurrif á reitnum hefst á næstu vikum en meðal þeirra húsa sem rifin verða eru Smiðjustígur 4 og 4a, þar sem skemmtistaðurinn Faktorý var til húsa, sem og Hverfisgata 32 og 34. Icelandair Hotels, dótturfélag Icelandair Group, ætlar að opna hótelið sumarið 2015. Hótelið mun heita Icelandair hótel Reykjavík Cultura og verður með aðstöðu til veitingareksturs, bæði inni og úti. Hótelið verður einnig með garð milli Hverfisgötu og Laugavegar en þar verður aðstaða fyrir margskonar viðburði og skemmtanir. Hægt er að skoða deiliskipulagið nánar á vef Reykjavíkurborgar. Hér fyrir neðan má sjá teikningu af svæðinu frá Icelandair Hotels.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Sjá meira