Dæmir alþjóðlegar kattaræktarsýningar Freyr Bjarnason skrifar 22. júní 2013 11:00 Marteinn Tausen, framkvæmdastjóri Hverfisgallerís, dæmir á kattaræktarsýningu einu sinni í mánuði. Annar af köttunum hans heitir romsa. fréttablaðið/anton
Marteinn Tausen, framkvæmdastjóri Hverfisgallerís við Hverfisgötu, er mikill kattavinur og fer einu sinni í mánuði til útlanda til að dæma kattaræktarsýningar. „Upphafið af þessu er að ég tók þátt í að stofna Kynjaketti, kattaræktarfélag Íslands, árið 1990,“ segir Marteinn. Í framhaldinu gengu Kynjakettir inn í stærsta alþjóðlega kattaræktarsamband heims, FIFe, sem stendur fyrir kattaræktarsýningum víða um heim, og fór Marteinn í þjálfun hjá samtökunum til að verða dómari. „Það er langt og strangt ferli og dýrt. En þar sem ég er með ástríðu fyrir þessu ákvað ég að gera þetta og í framhaldinu fékk ég réttindi til að dæma á sýningum þessara samtaka.“ Aðspurður segist Marteinn oftast fara einu sinni í mánuði til útlanda. Mest fer það eftir því hvernig stendur á hjá honum í vinnunni. Hann er eini kattadómarinn á Íslandi enda segir hann ekki mikla hefð fyrir sýningum sem þessum hér. Þó eru haldnar hér tvær sýningar á ári. Um tíma voru kattadómararnir reyndar tveir þegar Svíi sem var búsettur hér á landi dæmdi einnig á erlendis. Kattadómgæslan er fyrst og fremst áhugamál hjá Marteini en hann lagði engu að síður mikið á sig til að verða alþjóðlegur dómari. „Ég var í ein fimm ár í þessari þjálfun. Ekki stanslausri en með því að fara út á sýningar og námskeið.“ Sjálfur á Marteinn tvo ketti. Þeir eru af tegundinni Cornish Rex og heita Sveskja og Romsa. Marteinn hóf rekstur á Hverfisgalleríi í febrúar síðastliðnum og segir hann starfsemina hafa gengið mjög vel. Galleríið er í samstarfi við tólf listamenn. Tíu þeirra eru starfandi og einnig selur það verk úr tveimur dánarbúum. Í dag lýkur sýningu á verkum Magnúsar Kjartanssonar og næsta sýning hefst á fimmtudaginn þegar verk belgísku listakonunnar Jeanine Cohen verða sýnd.
Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Menning Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Fleiri fréttir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Sjá meira