Bara grín með Birni Braga Halla Þórlaug Óskarsdóttir skrifar 24. júlí 2013 15:45 Björn Bragi Árnason mun stýra þættinum Bara grín sem hefjast á Stöð 2 í ágúst. Mynd / Arnþór
Fjallað verður um nokkra bestu gamanþætti Íslendinga og skyggnst á bak við tjöldin í þáttum sem hefjast á Stöð 2 í ágúst. Þættirnir nefnast Bara grín og er um að ræða fimm þátta seríu, þar sem hver þáttur verður tileinkaður einni íslenskri gamanþáttaröð sem sýnd var á Stöð 2. Þáttaraðirnar sem fjallað verður um eru Fóstbræður, Stelpurnar, Vaktirnar, 70 mínútur og Steindinn okkar. „Við reyndum að velja þætti sem eru ólíkir innbyrðis,“ útskýrir Björn Bragi Árnason sem mun stýra þáttunum. Bara grín samanstendur af viðtölum við þá sem stóðu að þáttunum en einnig verða sýnd brot af því besta. „Viðtölin eru mjög skemmtileg og margt nýtt kemur fram, til dæmis ýmsar sögur sem ekki hafa áður verið sagðar opinberlega,“ segir Björn Bragi. „Við ætlum að kafa ofan í þættina. Ekki bara sýna bestu atriðin heldur skoða dálítið hvernig þættirnir urðu til, því þeir eiga sér allir dálítið skemmtilega sögu.“Fjallað verður um Vaktirnar.Hann tekur dæmi um Fóstbræður, sem áttu erfitt uppdráttar í byrjun og þótti útséð um að þættirnir yrðu sýndir á sínum tíma. „Bæði það og svo hvernig þessi hópur myndaðist. Það er áhugavert hvernig þessar ólíku persónur náðu að mynda svo sterka heild og gera einhverja albestu grínþáttaröð Íslandssögunnar.“ Áhorfendur geta því leyft sér að hlakka til þessara þátta sem varpa munu nýju ljósi á þættina sem hafa komið okkur til að hlæja í gegnum tíðina.Margir telja Fóstbræður einn allra besta grínþátt sögunnar og víst er að grínið hefur lifað gegnum árin. Sumir lifa jafnvel ekki heilan dag án þess að vísa í atriði eða karakter úr þáttunum. Fóstbræður voru á dagskrá Stöðvar 2 á árunum 1997-2001.
Mest lesið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Krummi kveður pabba sinn Lífið Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Fleiri fréttir Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Sjá meira