Lífið

Með báðar aðalpersónur Breaking Bad á kálfanum

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá verkið fullunnið, Húðflúr af Walter White til vinstri og Hafþór og Gunnar inni á Íslenzku húðflúrstofunni.
Hér má sjá verkið fullunnið, Húðflúr af Walter White til vinstri og Hafþór og Gunnar inni á Íslenzku húðflúrstofunni. Fréttablaðið/Daníel
„Þeir verða að vera saman, félagarnir,“ segir Gunnar Valdimarsson húðflúrari sem lauk við listaverk sitt af aðalpersónum Breaking Bad-þáttanna í gær. Fyrr í mánuðinum flúraði Gunnar andlitsmynd af persónunni Jesse Pinkman á Hafþór Eggertsson og í gær bættist hin aðalpersóna þáttanna við, efnafræðikennarinn Walter White.

„Þetta tók alls fimm tíma, talsvert styttri tíma en Jesse Pinkman því hann var í svo flókinni skyrtu,“ segir Gunnar. Hafþór, sem er átján ára gamall, fékk sér sitt fyrsta húðflúr í vor og hefur nú heldur betur bætt í safnið og er kominn með flúraðan handlegg, handarbak og kálfa. Hann ætlar sér að bæta húðflúrum af fleiri frægum andlitum á líkama sinn. „Næsta skrefið hjá okkur eru aðalpersónurnar í kvikmyndinni Fight Club,“ segir Gunnar. 

Fyrr í mánuðinum sagði Vísir frá því þegar Hafþór fékk sér húðflúrið af Jesse Pinkman.


Tengdar fréttir

Húðflúr með persónu úr Breaking Bad

Hugmynd að húðflúri af aðalpersónum Breaking Bad-þáttanna kviknaði á Facebook. Gunnar Valdimarsson húðflúrari hefur sent leikara þáttanna mynd af húðflúrinu og bíður svars. Fleiri flúr eru á leiðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×