Heldur ræður fyrir kóngafólk og forstjóra Ólöf Skaftadóttir skrifar 8. nóvember 2013 07:00 Magnús er vinsæll fyrirlesari, en hann hefur um tveggja áratuga reynslu af því að halda ræður og fyrirlestra um allan heim. WOBI/SCHEVING
Auk þess að sinna starfi sínu sem forstjóri Latabæjar er Magnús Scheving vinsæll fyrirlesari og líklega eftirsóttasti íslenski fyrirlesarinn í útlöndum. Magnús er reglulega pantaður á ráðstefnur þar sem fjallað er um ýmislegt sem viðkemur viðskiptum og leiðtogahæfni. Fyrirlestrana sitja forstjórar, markaðsstjórar og aðrir stjórnendur fyrirtækja. Hann hefur haldið fyrirlestra og verið á pallborðum með þekktum einstaklingum á borð við Colin Powell, fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og Paul Grugman, Nóbelsverðlaunahafa í hagfræði. Þá hefur Magnús talað fyrir þjóðarleiðtogum og kóngafólki, til dæmis Filipusi, ríkisarfa Spánar, á góðgerðarsamkomu þar í landi. Nýlega kom hann svo fram á ársþingi hjartalækna í Róm – svo verkefnin eru fjölbreytt. Magnús er nýkominn heim frá Noregi og Mexíkó. Þangað var hann fenginn til að halda hvetjandi ræður á ráðstefnum og í háskólum um markmiðasetningu. „Markaðssamtök Noregs báðu mig um halda fyrirlestur á árlegri ráðstefnu sinni eftir að hafa horft á mig tala með Seth Godin á ráðstefnu ÍMARK á Íslandi,“ segir Magnús. „Þá lá leiðin suður til Mexíkó þar sem ég talaði meðal annars á leiðtogaráðstefnu fyrir framan tvö þúsund yfirmenn í viðskiptalífinu,“ segir Magnús en ráðstefnan í Mexíkó er sú allra stærsta í Suður-Ameríku og margir heimsþekktir einstaklingar stíga þar á svið. „Í þetta sinn talaði ég ásamt Felix Baumgartner,“ segir Magnús, en Baumgartner vakti athygli heimsbyggðarinnar þegar hann rauf hljóðmúrinn í frjálsu falli úr 39 kílómetra hæð í fyrra. Þaðan hélt Magnús áfram ferð sinni um Mexíkó og hélt meðal annars ræður fyrir starfsmenn stórrar hótelkeðju þar í landi og hjá einum virtasta viðskiptaháskóla í Mexíkó, Monterey School of Technology. Í næstu viku heldur Magnús til Rússlands þar sem hann á að tala fyrir fréttamenn og sjónvarpsfólk þar í landi og eftir áramót er fyrirlestur í Washington DC í Bandaríkjunum á döfinni, sem er liður í samstarfi Magnúsar og Michelle Obama – að gera Ameríku heilsusamlegri. Aðspurður segist Magnús ekki getað annað eftirspurn. „Ég hef gert þetta í tuttugu ár og undanfarin fimm ár hafa þetta verið um tíu ráðstefnur á ári – meira kemst nú ekki fyrir í dagskránni hjá mér vegna anna við annað,“ segir Magnús.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Sjá meira