Garðabær útnefnt Draumasveitarfélagið Samúel Karl Ólason skrifar 18. október 2013 07:30 Draumasveitarfélag Garðabær er fjárhagslega best stadda sveitarfélagið. Mynd/Sigurjón
Garðabær hefur verið útnefnt Draumasveitarfélagið fjórða árið í röð af vikuritinu Vísbendingu, þar sem farið var yfir fjárhag 36 stærstu sveitarfélaganna. Garðabær mun þá vera best stadda sveitarfélagið fjárhagslega séð og gefur Vísbending því 8,8 í einkunn. Það er eina sveitarfélagið sem er með yfir 8,0 í einkunn. Það sem gerir Garðabæ að draumasveitarfélaginu er meðal annars að útsvarsprósentan þar er lægri en annars staðar, skuldir sem hlutfall af tekjum eru 72% og veltufjárhlutfall er 82%. Í öðru sæti er Seltjarnarnes með 7,2 en það var í níunda sæti á síðasta ári. Snæfellsbær og Hornafjörður eru bæði með 7 í einkunn og sitja í þriðja sæti listans. Á botni listans sitja Kópavogur með 2,8, Fljótsdalshérað með 2,6 og Álftanes með 0,9. Meðaltal sveitarfélaganna er 4,8. Notaðar eru rekstrartölur úr ársreikningum sveitarfélaga árið 2012 og nýjustu tölur sem liggja fyrir. Reykjavík situr í 31. sæti og hefur fallið niður um fjórtán sæti á milli ára og Grindavíkurbær stekkur upp um tuttugu sæti og er nú í því tíunda. Samkvæmt umfjölluninni fer fjárhagur sveitarfélaga hægt batnandi og skuldir fara lækkandi að raunvirði.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Sjá meira