Forvarnir muni líða fyrir niðurskurðinn Þorgils Jónsson skrifar 18. október 2013 07:30 Fyrirhugaður niðurskurður til framhaldsskólanna mun koma illa niður á forvarnastarfi, að sögn kennara og forvarnafulltrúa.
Fyrirhugaður niðurskurður á framlögum til framhaldsskóla kemur óumflýjanlega til með að koma niður á starfi skólanna, ekki síst stoðþjónustu á borð við forvarnir. Þetta segir Hrafnkell Tumi Kolbeinsson, framhaldsskólakennari við Flensborgarskólann og forvarnafulltrúi. Í fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að heildarframlög til framhaldsskólanna lækki um 1.544 milljónir til viðbótar við niðurskurð síðustu ára. „Það er einfaldlega ekki hægt að taka alla þessa peninga út úr kerfinu á sama tíma og nemendum fjölgar án þess að eitthvað gefi eftir,“ segir Hrafnkell Tumi. „Öll stoðþjónusta, þar á meðal forvarnir, mun láta undan. Þetta er eitt af stóru málunum.“Hrafnkell Tumi KolbeinssonHrafnkell Tumi segir að ástand mála í forvörnum í framhaldsskólum megi bæta töluvert frá því sem nú er. Forvarnafulltrúar séu jafnan kennarar í hlutastörfum, í á milli fimm og tíu prósenta starfshlutfalli og komist sjaldnast yfir annað en að vera í gæslu á skólaböllum. „Það eitt tekur upp nær allan þennan tíma, þannig að það er útséð með að þeir nái að sækja þekkingu á ráðstefnum úti í bæ eða að fá aðra kennara með sér í þetta. Þannig að það er sáralítið gert og á síðustu árum hefur verið dregið saman í þessu starfi, jafnvel lagðar niður stöður í stöku skólum.“ Ný lög gera ráð fyrir að í hverjum skóla sé forvarnaáætlun til staðar en kannanir sýna með óyggjandi hætti að neysla ungmenna eykst stórum á milli grunnskóla og framhaldsskóla ásamt því að viðhorf bæði ungmenna og foreldra þeirra gjörbreytist. Í nýlegri könnun Rannsóknar og greiningar hjá Háskólanum í Reykjavík kemur meðal annars fram að í tíunda bekk síðasta vor hafi um fimm prósent nemenda orðið ölvuð á síðustu þrjátíu dögum, en hlutfall sextán og sautján ára framhaldsskólanema í haust sem sama gilti um, var 35 prósent.
Mest lesið Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Innlent „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ Innlent Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent „Þjóðin á rétt á að vita“ Innlent Fleiri fréttir Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Magnús Már nýr framkvæmdastjóri Áss „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Sjá meira