Læknar verði áfram í björgunarþyrlum Haraldur Guðmundsson skrifar 11. október 2013 08:00 Mikil óvissa hefur ríkt um stöðu þyrlulækna á árinu. Fréttablaðið/hari
Þyrlulæknar munu að öllum líkindum starfa áfram um borð í björgunarþyrlum Landhelgisgæslunnar. Uppsagnir þeirra áttu að taka gildi um áramótin. „Ég er þeirrar skoðunar að þjónusta þyrlulækna sé mjög mikilvæg og þess vegna forgangsröðuðum við okkar fjármagni þannig að sú þjónusta yrði tryggð áfram,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra en Landhelgisgæslan heyrir undir innanríkisráðuneytið. Mikil óvissa hefur ríkt um stöðu þyrlulækna á árinu. Í júní síðastliðnum var öllum þyrlulæknum Landhelgisgæslunnar sagt upp vegna fjárskorts en á endanum náðist samkomulag á milli stjórnvalda og Landspítalans um að fresta uppsögnunum. Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár er lögð fram fimmtíu milljóna króna hækkun á fjárveitingum til Landhelgisgæslunnar og er hún eyrnamerkt þyrlulæknum. Að auki skilaði embætti landlæknis sérstöku áliti til innanríkisráðherra í fyrradag þar sem þjónusta læknanna er sögð bráðnauðsynleg.Hanna Birna KristjánsdóttirLandhelgisgæslan greiðir um 45 milljónir króna á ári til Landspítalans vegna þyrlulækna. Fimm læknar skipta með sér vöktum, á meðan þeir sinna öðrum störfum á spítalanum, og hver þeirra fór að meðaltali í um þrjú útköll á mánuði á árinu 2012. Landhelgisgæslan greiddi því um 750 þúsund krónur á mánuði fyrir hvern lækni á árinu, en inni í þeirri upphæð eru einnig lyf og búnaður læknanna. Hanna Birna segir þjónustuna vissulega dýra en að ráðuneyti hennar hafi skoðað hvort sparnaður hlytist af því ef samningi við þyrlulækna yrði sagt upp. „Þá hefði þurft að hafa annan einstakling um borð í þyrlunum og sparnaður af því hefði verið óverulegur,“ segir hún. Viðar Magnússon, yfirlæknir þyrlusveitarinnar og læknir á Landspítalanum, hafði ekki heyrt af ákvörðun ráðuneytisins þegar Fréttablaðið talaði við hann í gær. „Ef þetta reynist rétt þá get ég ekki verið annað en verið ánægður með að menn hafi séð gagnsemi þessarar þjónustu,“ segir Viðar.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira