Sá yðar er syndrómlaus er Björg Árnadóttir skrifar 10. október 2013 06:00 Ég er klaufi. Eins gott að viðurkenna það. Mér tekst að fá hurðarhún upp í ermina þegar ég geng fram hjá dyrum og undantekningarlaust á ég í erfiðleikum með að opna umbúðir. Einhverra hluta vegna haga rafmagnstæki sér öðruvísi í mínum meðförum en annarra. Flestir halda þó að ég sé laghent af því að ég er listræn, hugmyndarík og vandvirk og allt sem ég bý til er fallegt. En guð minn góður hvað ég þarf að fara í felur með þumalfingurna tíu á meðan ég bý hlutina til. Ég stakk upp á því á facebook um daginn við góðar undirtektir að stofnuð yrðu samtök klaufa. Nokkru seinna las ég grein um stúlku sem hafði verið greind með syndróm sem lýsir sér meðal annars í „leti og klaufaskap“. Vá, þetta er lýsingin á mér, hugsaði ég þó að mitt syndróm sé langt frá því að vera á eins alvarlegu stigi og hennar. Í greininni er lýst hvernig stúlkan hefur stöðugt orðið fyrir aðkasti vegna einkenna sinna. Ég þekki það, í besta lagi góðlátlegt glott á meðan verkið er tekið úr höndum manns, í versta falli skammarræður yfir að maður skuli ekki nenna að leggja á sig að læra hvernig hlutirnir virka. Eins og ég hafi ekki reynt. Ég á ótal tossamiða þar sem ég hef skrifað nákvæmlega hvernig á að fást við hin ýmsu tæki og tól en þegar ég ætla að nota miðann hafa tækin á undraverðan hátt tekið breytingum og virka alls ekki eins og síðast.Við erum ólík Vísindamenn hafa víðtæka þekkingu á heilanum og almenningur er blessunarlega smátt og smátt að tileinka sér hana. Við vitum að heilar fólks vinna ekki allir nákvæmlega eins. Við erum ólík. Við þekkjum kenningar um fjölgreind sem útskýra hvers vegna manneskja getur verið afburðagreind á einu sviði og örviti á öðru. Við vitum um ýmis heilkenni sem valda hugsunum og hegðun sem engan langar að þurfa að burðast með. Ég heyrði einu sinni taugasérfræðing orða þetta þannig að heilinn sé eins og grautur úr blönduðum ávöxtum og misjafnt sé hversu mikið af hverjum þeirra fólk fái í sína skál. Þess vegna höfum við hin ýmsu syndróm sem nú eru smátt og smátt að verða þekkt og viðurkennd undir margvíslegum erlendum skammstöfunum. Heilar okkar eru ólíkir og þess vegna stríða sumir við alvarlegar fíknir í hugbreytandi efni og atferli, fíknir sem ekki nokkur lifandi manneskja hefur valið sér sem fylginaut í lífinu. Þess vegna hættir með tímanum heilinn í sumum að gegna hefðbundnum hlutverkum eins og að geta munað hvað gerðist í gær. Og allir reyna að fela heilkennin sín og fíknir, geð- og minnissjúkdóma. Enginn má vita af þessu, ávaxtabitarnir mega ekki fyrir nokkrun mun sjást. Þetta er sérlega bagalegt í ljósi þess að leiðin til lausnar felst í því að viðurkenna vanda sinn og fela hann ekki. Láta aðra taka tillit til þess að maður er eins og maður er, klaufi, lesblindur, ofvirkur, fíkill eða með minnisglöp. Hvers kyns meðferð virkar margfalt betur ef fólk með ávaxtabitana í heilahvelum sínum þarf ekki að fást við fordæmingu umhverfisins á meðan það leitar að bata og betra lífi. Ég hef ákveðið að stofna ekki samtök klaufa. Ég vil með þessari grein benda á að kannski sé búið að stofna nóg af samtökum þeirra með syndrómin, að nú sé komið að því að stofnuð verði samtök þeirra sem syndrómlausir eru. Markmið samtakanna yrði að vinna að því að allir fái eða vera eins og þeir eru – með sín syndróm eða syndrómlausir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir Skoðun Ég, glæpamaður Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo Skoðun Rúllum út rauða dreglinum Pétur Marteinsson Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Rödd ungs fólks á Seltjarnarnesi þarf að heyrast Auður Halla Rögnvaldsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði skrifar Skoðun Hér er matur, um mat, frá mat, til fæðubótarefna... Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tryggjum fæðu- og eldsneytisöryggi með uppbyggingu á Dysnesi Pétur Ólafsson skrifar Skoðun Sterk vinnustaðarmenning er lykillinn að góðum árangri Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Nýtt Álftanes á einu kjörtímabili Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Gagnsæi í ákvarðanatöku Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun í breyttri heimsmynd Erna Björnsdóttir skrifar Skoðun Rödd ungs fólks á Seltjarnarnesi þarf að heyrast Auður Halla Rögnvaldsdóttir skrifar Skoðun Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir skrifar Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Rúllum út rauða dreglinum Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Ég, glæpamaður Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Með svipuna á bakinu Rannveig Eyja Árnadóttir skrifar Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að fordæma stríðið í Íran, Líbanon og Gaza Einar Baldvin Árnason skrifar Skoðun Sterk viska í stafni íslenskrar kjarabaráttu Freyr Snorrason skrifar Skoðun Gervigreind, ábyrgð og framtíð samfélags okkar Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Mjallhvít og dvergarnir sjö Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Óveðrið tekur undir með atvinnulífinu Hugrún Elvarsdóttir,Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Viljum við virða mannréttindi fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Maístjörnur verkalýðsins, riddarar hringborðsins eða konungsríki fárra – við viljum von, trú og kærleika Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Kvenheilsa, læknisfræðilegt kannabis og lýðheilsa — tækifæri fyrir Ísland Magnús Þórsson skrifar Skoðun Hættulegasta fitan er ekki sú sem sést utan á líkamanum Anna Lind Fells skrifar Sjá meira
Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir Skoðun
Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar
Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að fordæma stríðið í Íran, Líbanon og Gaza Einar Baldvin Árnason skrifar
Skoðun Óveðrið tekur undir með atvinnulífinu Hugrún Elvarsdóttir,Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar
Skoðun Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir skrifar
Skoðun Maístjörnur verkalýðsins, riddarar hringborðsins eða konungsríki fárra – við viljum von, trú og kærleika Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar
Skoðun Kvenheilsa, læknisfræðilegt kannabis og lýðheilsa — tækifæri fyrir Ísland Magnús Þórsson skrifar
Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir Skoðun