Leigi íbúðir sínar út sem allra fyrst Garðar Örn Úlfarsson skrifar 10. október 2013 07:00 Eyþór Arnalds, er formaður bæjarráðs Árborgar sem segir vaxandi þörf á leiguhúsnæði í sveitarfélagiinu. Fréttablaðið/GVA
Bæjarráð Árborgar skorar á Íbúðalánasjóð að koma húsnæði, sem er í eigu sjóðsins og stendur autt, tafarlaust í íbúðarhæft ástand og í útleigu. Bæjarráðið segir að vaxandi eftirspurn sé eftir húsnæði í Árborg og stefni í óefni hjá fjölda fólks. „Færa má rök fyrir því að á annað hundrað fjölskyldur og einstaklingar séu nú í þörf fyrir leiguhúsnæði,“ segir bæjarráðið sem kveður þverpólitískan vilja hjá þingmönnum Suðurkjördæmis til þess að koma húsnæði Íbúðalánasjóðs í útleigu. „Meira en ár er síðan þingmenn Suðurkjördæmis áttu fund með framkvæmdastjóra og formanni stjórnar Íbúðalánasjóðs, þar sem lýst var þverpólitískum og afdráttarlausum vilja til þess að koma húsnæði sjóðsins í útleigu sem allra fyrst, hvort heldur væri í sölu til sjálfstæðra leigufélaga eða sem hluta af eigin leigufélagi sem stofnað var með lögum frá Alþingi árið 2012. Þar voru tekin af öll tvímæli um að það væri einnig hlutverk Íbúðalánasjóðs að leigja út húsnæði á sanngjörnu verði og stuðla með þeim hætti að auknu jafnvægi á húsnæðismarkaði þar sem mikill skortur ríkir á leiguhúsnæði. Bæjarráð Árborgar hvetur Íbúðalánasjóð til þess að ráða bót á þessu málum án tafar og koma íbúðunum á leigumarkað hið fyrsta, með þeim hætti sé best komið til móts við þá miklu eftirspurn sem er eftir húsnæði í sveitarfélaginu og snertir sérstaklega ungt og efnaminna fólk sem ekki er í stakk búið til að festa kaup á eigin húsnæði um þessar mundir,“ segir í bókun bæjarráðs.
Mest lesið Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Innlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Fleiri fréttir „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Sjá meira