Fljóta glaðvakandi að feigðarósi Þorgils Jónsson skrifar 8. október 2013 10:06 Náist ekki samkomulag á bandaríska þinginu um lausn í deilum um fjárlög og skuldir ríkisins stefnir í greiðslufall ríkissjóðs með ófyrirséðum afleiðingum. NordicPhotos/AFP
Pattstaðan í Washington er nú harðari en nokkru sinni fyrr þar sem gjá milli flokka ógnar stöðugleika um heim allan. Vika er síðan lokað var fyrir öll ríkisútgjöld sem ekki eru talin bráðnauðsynleg og nú stefnir allt í uppgjör næstu daga vegna skulda ríkissjóðs. Repúblikanar, sem eru í meirihluta í fulltrúadeildinni, hafa hafnað því að semja við demókrata í öldungadeildinni um lausn mála nema gildistöku nýs sjúkratryggingakerfis, sem kennt er við Barack Obama forseta, verði frestað. Slíkt taka demókratar ekki í mál.Samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna er það þingið eitt sem hefur vald til að stofna til skulda fyrir hönd ríkisins. Núverandi lög kveða á um að skuldir skuli ekki verða hærri en 16.700 milljarðar dala, sem nemur um 2.000.000 milljörðum króna. Sú fjárhæð er til dæmis 3.400 sinnum hærri en þeir 587 milljarðar sem eru heildarútgjöld íslenska ríkisins á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi. Ef ekki verður samið um að hækka skuldaþakið mun ríkissjóður ekki geta staðið undir útgjöldum og afborgunum af lánum, sem myndi leiða til greiðslufalls með alvarlegum afleiðingum. Svipuð staða kom upp síðast þegar skuldir þokuðust nálægt löglegu marki, sumarið 2011. Þá náðu flokkarnir ekki saman fyrr en á ögurstundu og lögin um hærra skuldaþak voru staðfest sama dag og búist var við að gjaldfall yrði. Það hafði engu að síður miklar afleiðingar þar sem tiltrú neytenda dróst saman, erlendir aðilar forðuðust ríkisskuldabréf um hríð og hlutabréfamarkaðir tóku dýfu. Auk þess var lánshæfismat bandaríska ríkisins lækkað um flokk. Flestir sérfræðingar sem hafa gefið álit sitt á framvindunni telja líklegast, í ljósi reynslunnar, að flokkarnir nái saman að lokum. Vandræðin varpa þó enn og aftur ljósi á það hversu stirt er milli flokkanna og hversu mikið ógagn kyrrstöðuástandið vinnur almenningi, efnahag og atvinnulífi þar í landi.
Mest lesið Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Fleiri fréttir Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira