Innlent

Vill vita hvað fæðið kostar

Valur Grettisson skrifar
Leikskólanefnd Kópavogs fundaði um grænmetismálið.
Leikskólanefnd Kópavogs fundaði um grænmetismálið. Fréttablaðið/Stefán
Bæjarfulltrúi Vinstri grænna í Kópavogsbæ, Arnþór Sigurðsson, óskaði eftir því á fundi leikskólanefndar í vikunni að grænmetisfæði á leikskólum í bænum yrði kostnaðargreint.

Fréttablaðið greindi nýlega frá að Kópavogur byði ekki sérstaklega upp á grænmetisfæði fyrir börn. Deildarstjóri leikskólasviðs Kópavogsbæjar sagði þá að kostnaður væri ein af ástæðum þess að ekki væri komið til móts við þau sem óska eftir grænmetisfæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×