Brenndi dóttur sína með sígarettu og beitti ofbeldi Boði Logason skrifar 4. október 2013 07:00 Í ákæru segir að faðirinn hafi slegið dóttur sína ítrekað í líkamann, hrint henni, brennt hana með logandi sígarettu í andlitið og í beinu framhaldi tekið upp tvo eldhúshnífa úr skúffu og hótað henni lífláti.
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og hótanir í garð dóttur sinnar þegar hún var átján ára. Í ákæru segir að faðirinn hafi slegið dóttur sína ítrekað í líkamann, hrint henni, brennt hana með logandi sígarettu í andlitið og í beinu framhaldi tekið upp tvo eldhúshnífa úr skúffu og hótað henni lífláti. Stúlkan hlaut meðal annars mar á handleggjum og brjóstkassa, sár á fingri og tognun á hálsi. Farið er fram á að faðirinn verði dæmdur til að greiða dóttur sinni 600 þúsund krónur í miskabætur. Stúlkan sem er rúmlega tvítug í dag sagði í samtali við Fréttablaðið að faðir sinn hefði ítrekað beitt aðra fjölskyldumeðlimi ofbeldi. „Ég vil stíga fram vegna þess að enginn hefur þorað að kæra hann þó hann hafi oft gert þetta við aðra í fjölskyldunni. Eftir að hafa slegið mig og brennt með sígarettu elti hann mig og litlu systur mína um húsið með hníf þangað til við náðum að koma okkur út. Þá hætti hann að elta okkur,“ segir stúlkan en hún vill ekki koma fram undir nafni til þess að vernda fjölskyldu sína. Stúlkan býr ekki hjá foreldrum sínum en segist halda sambandi við föður sinn þó það samband sé vissulega stirt. Hún segir föður sinn eiga við áfengisvandamál að stríða og vonast til að kæran verði til þess að hann breytist. „Pabbi er ekki búinn að drekka í tvö ár núna síðan atvikið gerðist. Ég vil samt halda málinu áfram því hann þarf að skilja að hann kemst ekki upp með þetta. Ég vil ekki að hann hætti að drekka í stuttan tíma meðan þetta gengur yfir. Ég vona að hann læri af mistökum sínum og taki þessu eins og maður,“ segir stúlkan. Aðalmeðferð málsins fer fram í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Verði faðirinn fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira