Óttast að stöðnun verði langvarandi Óli Kristján Ármannsson skrifar 28. september 2013 07:00 Frummælendur og gestir á ráðstefnu Samkeppniseftirlitsins. Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins er fremstur. Á hans hægri hönd er Angel Gurría framkvæmdastjóri OECD og svo Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra og Ari Kristinn Jónsson rektor Háskólans í Reykjavík. Fréttablaðið/GVA
Lítil arðsemi og framleiðni í íslensku átvinnulífi kallar á sérstaka árvekni að mati Samkeppniseftirlitsins. „Sú hætta er fyrir hendi að þetta ástand leiði til meiri aðgangshindrana fyrir nýja aðila, innlenda sem erlenda, undir því yfirskyni að vernda þurfi þau félög sem nú eru starfandi hér á landi,“ segir í samantekt Samkeppniseftirlitsins, sem í gær stóð fyrir alþjóðlegri ráðstefnu undir yfirskriftinni „The future ain‘t what it used to be.“ Um leið var gefin út skýrslan „Er týndi áratugurinn framundan? Öflug samkeppni læknar stöðnun.“ Fram kom í framsögu Páls Gunnars Pálssonar forstjóra Samkeppniseftirlitsins á ráðstefnunni að talin væri hætta á að stöðnunin sem nú ríki rakin sé að hluta til mikillar skuldsetningar fyrirtækja leiði til ástands sem varð í Japan eftir kreppuna 1990 og nefnt hefur verið „týndi áratugurinn“. Frummælendur á ráðstefnunni voru sammála um að samkeppni væri leiðin til betri tíðar. Þannig sagði Páll Gunnar tvær leiðir standa til boða. Annars vegar væri leið virkjrar samkeppni eða leið verndarstefnunnar sem myndi lengja kreppuna. Í pallborðsumræðum, tók meðal annars þátt Angel Gurría, framkvæmdastjóri Efnhags- og framfarastofnunarinnar, OECD, en hann var að auki enn frummælenda á ráðstefnunni. Gurría lagði áherslu á mikilvægi samstarfs samkeppniseftirlita til þess að takast mætti á við samráð alþjóðlegra stórfyrirtækja. Hann sagði algengt að verð á mörkuðum þar sem samkeppni væri takmörkuð væri um 40 prósentum hærra en ella. Þá áréttaði hann í pallborðsumræðum mikilvægi heilbrigðrar samkeppni fyrir vöxt og viðhald heilbrigðs hagkerfis. Þannig gæti engin nýsköpun orðið í hagkerfi þar sem enginn hvati væri til þess að gera betur. Eftirspurnin gæfi upp andann í umhverfi stöðnunar. Vegna þessa væri mjög mikilvægt að eftirlitsstofnanir hefðu þau verkfæri sem þyrfti og dygðu til þess að halda fyrirtækjum á beinu brautinni. „Fyrirtæki ganga eins langt og við hleypum þeim,“ sagði Gurría. Refsing eins fyrirtækis fyrir brot á samkeppnisreglum gæti orðið og yrði öðrum víti til varnaðar. „Samkeppniseftirlit þarf að bíta.“ Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra sem þátt tók í umræðunum sagðist vilja draga lærdóm af barnauppeldi þegar kæmi að því að því að byggja upp heilbrigt samkeppnisumhverfi. „Börn ganga eins langt og þeim er hleypt,“ sagði hún og bætti við að fengist væri við óstýrilát börn með því að leiðbeina þeim og kenna. „Og með refsingu ef allt annað þrýtur,“ bætti hún við. Páll Gunnar sagðist hins vegar ekki geta tekið undir samlíkingu barna og fyrirtækja. „Börnum er hægt að umbuna með ís og viðlíka meðölum til að kenna rétta hegðan, en ekkert slíkt er hægt með fyrirtæki,“ sagði hann. „Við þurfum tennur sem bíta. Annars hlustar enginn.“ Páll Gunnar sagði hugarfarsbreytingar þörf, sér í lagi hjá hinu opinbera um að heilbrigð samkeppni væri það sem þyrfti til. „Við verðum að gera samkeppni að grundvallarhugsun á ferð okkar fram á veginn oghvernig nota má hana til þess að opna nýja markaði. Á Íslandi erum við að loka mörkuðum, einum af öðrum.“Angel Gurría Framkvæmdastóri OECD segir það versta sem stjórnvöld geti gert til að treysta samkeppni sé ekki neitt. Samkeppni sé neytendum mikilvæg, stuðli að bættri framleiðslu og lægra vöruverði. Fréttablaðið/GVAKostnaðarsöm einangrun fylgir viðvarandi gjaldeyrishöftum „Reynsla okkar er klárlega að eftir því sem ríki eru opnari verður ábatinn meiri, jafnvel hliðarábatar sem ekki höfðu verið ráðgerðir,“ segir Angel Gurría, framkvæmdastjóri OECD, þegar hann er ynntur eftir áliti sínu á stöðu Íslands og íslensks samkeppnisumhverfis innan gjaldeyrishafta. Gurría segir ljóst að landið hafi þurft að bregðast við hruni bankanna, sem hafi verið hliðarverkan fjármálakreppunnar sem reið yfir heiminn og enn sé verið að fást við. Ríkið hafi aldrei haft burði til þess að bjarga bönkunum eða ganga í ábyrgðir fyrir skuldum sem námu margfaldri þjóðarframleiðslu Íslendinga. „Því varð fyrir valin markaðslausn sem enn er verið að vinna úr.“ OECD segir Gurría að vinni eftir samþykktum um frjálst flæði fjármagns. „Ísland skráði ákvörðun sína um setningu hafta hjá okkur og fallist var á röksemdir um nauðsyn þeirra. En þetta eru náttúrlega aðgerðir sem í eðli sínu eru tímabundnar og þarf á endanum að leggja af. “ Það segir hann ekki bara nauðsynlegt vegna þess að samþykktir eða nefnd kveði á um frelsi fjármagnsflutninga. „Heldur vegna þess að það er skynsamlegt og gott fyrir Ísland að komast aftur í eðlilegt ástand. Spurningin um hvenær það geti orðið stendur eftir og reglan er, því fyrr því betra. En auðvitað þurfa aðstæður að vera réttar þannig að ekki taki við önnur umferð óstöðugleika og upplausnar.“ Smæð gjaldmiðilsins kalli á að Ísland verði á ný þátttakandi í alþjóðamörkuðum, auk þess sem smæð landsins þýði að ríkið að ríkið geti aldrei varið gjaldmiðilinn áföllum. „Hinn valkosturinn er mikil einangrun og hún er líka kostnaðarsöm.“
Mest lesið Að sofna yfir sjónvarpinu á kvöldin telst ekki með Atvinnulíf Sagði eldri menn vísvitandi borna röngum sökum en situr uppi með Svarta-Pétur Neytendur Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent Tilefni fyrir ríkið að íhuga sölu Landsbankans Viðskipti innlent Reka forstjóra danska lyfjarisans sem malar gull á Ozempic Viðskipti erlent Gömlu höfuðstöðvar Icelandair verða hjúkrunarheimili Viðskipti innlent „Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitthvað“ Atvinnulíf Himinlifandi og ekki hugsi yfir litlum hlut fagfjárfesta Viðskipti innlent Strætó hættir að taka á móti reiðufé í vögnum 1. júní Viðskipti innlent Heinemann svarar Sameyki: „Þetta er rangt“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tilefni fyrir ríkið að íhuga sölu Landsbankans Strætó hættir að taka á móti reiðufé í vögnum 1. júní Himinlifandi og ekki hugsi yfir litlum hlut fagfjárfesta Heinemann svarar Sameyki: „Þetta er rangt“ Gömlu höfuðstöðvar Icelandair verða hjúkrunarheimili Ríflega þrjátíu þúsund einstaklingar kaupa hlut ríkisins „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Heildarvirði tæpur 91 milljarður og líkur á að nær allir hlutir fari til almennings Líklega stærsta eignasala ríkissjóðs frá upphafi Selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka Sjóvá tapar hálfum milljarði Málaferli vegna innkaupa ÁTVR halda enn áfram Jón Ólafur nýr formaður SA Hefja flug til Edinborgar og Malaga Árni hættir sem forstjóri Húsasmiðjunnar Landsbankinn við Austurstræti falur Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Bein útsending: Lokadagur Nýsköpunarviku Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Spá óbreyttum stýrivöxtum Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Sjá meira
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent