Stúlka kærir fimm fyrir hópnauðgun Kristján Hjálmarsson skrifar 15. ágúst 2013 07:00 Eskifjörður er friðsæll bær. Umdæmi lögreglunnar þar er hins vegar stórt og þung mál í vinnslu. Fréttablaðið/Vilhelm
Þrjú kynferðisbrot eru nú til rannsóknar hjá lögreglunni á Eskifirði, þar á meðal ein hópnauðgun. Sautján ára stúlka kærði í byrjun mánaðarins fimm karlmenn, á milli tvítugs og þrítugs, fyrir nauðgun sem átti sér stað á Austurlandi í lok júní. Yfirlögregluþjónninn á Eskifirði staðfesti þetta í samtali við Fréttablaðið í gær en vildi ekki gefa upp hvar brotið hefði verið framið. Í lok júlí kærði kona fyrrverandi sambýlismann sinn fyrir brot gegn dóttur hennar. Brotin áttu sér stað á Austurlandi á árunum 2007-2011 þegar stúlkan var á unglingsaldri. Maðurinn býr enn á Austurlandi. Það mál er lengst komið í rannsókn af málunum þremur og verður væntanlega sent ákæruvaldinu innan skamms. Þá er einnig nauðgun sem átti sér stað á Norðurlandi til rannsóknar hjá lögreglunni á Eskifirði. „Við höfum því miður fengið að jafnaði níu kynferðisbrotamál inn á borð til okkar á hverju ári síðustu fimm ár eða svo,“ segir Jónas Wilhelmsson yfirlögregluþjónn á Eskifirði. „Rannsókn á þessum málum gengur mjög vel.“Ráðist inn á heimili lögreglumanns Mikill erill hefur verið hjá lögreglunni á Austurlandi vegna manneklu í sumar og ekki hefur verið hægt að ráða í allar afleysingastöður vegna fjárskorts. Sömu sögu er að segja af embætti lögreglunnar á Seyðisfirði. Í fyrrakvöld réðst karlmaður inn á heimili eina lögreglumannsins sem var á vakt þar og hótaði fjölskyldu hans lífláti. Lögreglumaðurinn var ekki heima þegar innrásin átti sér stað. Hann var sem fyrr segir á vakt í umdæminu, sem nær frá Vopnafirði í norðri til Seyðisfjarðar í suðri.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira