Hyggur á stórsókn þrátt fyrir milljarða tap María Lilja Þrastardóttir skrifar 25. júlí 2013 07:00 Halldór Jörgensson.
Halldór Jörgensson, fráfarandi framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi, er tekinn við sem sölu- og markaðsstjóri Surface-spjaldtölvu Microsoft alls staðar utan Bandaríkjanna. Halldór mun þó starfa áfram hér á landi. „Allavega um sinn, skattkerfinu til ánægju,“ segir Halldór kíminn. Halldór hafði verið í samráði við þjónustuteymi Microsoft. „Ég hafði verið að skipta mér aðeins af þeim og ég fann að þetta var eitthvað sem ég hafði áhuga á. Það þróaðist út í það að ég var að endingu beðinn um að koma í liðið,“ segir Halldór. Surface-spjaldtölvan var markaðssett á ört stækkandi markað snjalltækja en galt afhroð í samanburði við iPad frá Apple. Nýlega var greint frá 900 milljón dollaratapi Microsoft vegna framleiðslunnar. Tapið samsvarar 109 milljörðum króna. Halldór segist þó ekki hafa verið fenginn sérstaklega inn til þess að bjarga hlutunum. „Mín ráðning var gerð áður en þetta tap var gert kunnugt. Þetta breytir engu um hvað við ætlum að gera eða hvernig á að gera þetta. Við þurfum að vinna mjög hratt á ört vaxandi markaði og ég er mjög spenntur að takast á við þetta verkefni. Það er mikill uppbyggingarfasi á fyrirtækinu og við erum ekki að breyta okkar áætlununum neitt vegna þessa. Við ætlum að ná árangri og ná yfirhöndinni á þessum snjalltækjamarkaði,“ segir Halldór.
Mest lesið Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Sjá meira