Neytendaréttur skýr við kaup á ferðum Nanna Elísabet Jakobsdóttir skrifar 25. júlí 2013 07:15 Lög tryggja neytendum vernd við kaup á ferðum segir Steinunn Tryggvadóttir, sölustjóri hjá Úrval Útsýn.
Kaupi manneskja pakkaferð í gegnum ferðaskrifstofu gilda um ferðina lagaákvæði sem tryggja neytendavernd. Skilmálar ferðaskrifstofa eru í samræmi við lögin að sögn Steinunnar Tryggvadóttur, sölustjóra hjá Úrval Útsýn. Rigningarveður og sólarleysi á höfuðborgarsvæðinu í sumar hafa gert það að verkum að sala á sólarlandaferðum hefur aukist til muna. Fólk skipuleggur ýmist ferðalagið sjálft eða kaupir svokallaðar pakkaferðir. „Ýmis hagræði felast í því að kaupa pakkaferð frekar en að skipuleggja ferð sjálfur á netinu,“ segir Steinunn Tryggvadóttir, sölustjóri hjá Úrval Útsýn. „Þegar þú bókar farseðil sjálfur á netinu þá er lítið um tryggingar.“ Steinunn segir þessu öðruvísi farið með pakkaferðir því um þær gilda lagaákvæði sem veita neytendum vernd. „Alferðarlögin eru skýr og einföld. Skilmálarnir okkar fara vel saman við skilmála neytendasamtakanna,“ segir hún. Mikilvægt er að neytendur átti sig á stöðu sinni við kaup á slíkum ferðum. Lög um alferðir tryggja rétt kaupanda pakkaferðar til þess að afpanta ferðina vegna stríðsaðgerða, borgarastyrjaldar, lífshættulegra smitsjúkdóma eða annars sem hefur afgerandi áhrif á framkvæmd pakkaferðar á áfangastað eða nálægt honum. Ef ferð er aflýst á kaupandi rétt á fullri endurgreiðslu eða að fá í staðinn sambærilega ferð. „Það er ekki mikið um að ferðir séu felldar niður,“ segir Steinunn. „Það getur þó alltaf eitthvað komið upp. Til dæmis ef við setjum upp ferð, tökum frá sæti og pöntum gistingu úti í heimi en hún selst ekki þá þurfum við að fella hana niður. Þá látum við vita í tæka tíð svo að það verði enginn skaði fyrir kaupandann.“ Fyrrnefnd lög tryggja það að verði kaupandi ferðar fyrir tjóni vegna verulegra breytinga á ferðatilhögun eða vegna þess að ferð hefur verið aflýst á hann rétt á skaðabótum. Steinunn segir slík mál alltaf koma upp endrum og eins. „Stundum er fólk ósátt og þá er sérstök þjónustudeild hjá okkur sem fer í það að kynna sér málið.“ Hún segir að þjónustudeildin og sá sem kvartar komist stundum ekki að sameiginlegri niðurstöðu en að þá sé hægt að fara með málið til Neytendasamtakanna. „Fólk er meðvitað um sinn neytendarétt,“ segir Steinunn sem kveður Úrval Útsýn hafa alferðarlögin í hávegum.
Mest lesið Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Viðskipti innlent Jólabarnið týndist: „Ég er að færast upp skalann aftur, segi sex“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira