Lífið í Bragganum Marín Manda skrifar 12. júlí 2013 11:30 Erna Elínbjörg Skúladóttir
Mæðgurnar frá Birtingaholti reka huggulegt kaffihús og leirvinnustofu í gömlum bragga frá stríðsárunum. Lífið kíkti í heimsókn til þeirra rétt fyrir utan Flúðir. Erna Elínbjörg Skúladóttir er glaðlynd og ævintýragjörn kona en hún hefur meðal annars unnið sem kaffibarþjónn í Kólumbíu. Fyrir tveimur árum útskrifaðist hún með BA-gráðu í keramikgerð með áherslu á myndlist. Nú stundar hún mastersnám í myndlist í Noregi en yfir sumartímann ræktar hún fjölskylduna á Íslandi og býr til postulín og kaffi í faldri perlu rétt fyrir utan Flúðir sem heitir Bragginn.Bollar sem Erna Elínbjörg býr til."Þetta var sameiginleg hugmynd hjá fjölskyldunni að það væri hægt að nýta þetta húsnæði, gera það upp og nota það sem til væri. Þetta var kartöflugeymsla áður fyrr sem afi minn byggði fyrir 40 árum. Hann keypti gamlan herbragga og byggði hann inn í hólinn og nú rekum við kaffihús og vinnustofu þar,“ segir Erna Elínbjörg Skúladóttir.Mæðgurnar reka kaffihúsið saman.Fyrir tólf árum hætti fjölskyldan í Birtingaholti kartöflurækt og leigði út landið undir kornrækt að fleira. Í dag reka mæðgurnar Lára Hildur Þórsdóttir, Ásthildur Skúladóttir og Erna Elínbjörg Skúladóttir kaffihúsið saman og eru hráefnin að mestu leyti fengin úr sveitinni um kring. Að öðru leyti eru keyptar inn lífrænar vörur.Litlir flóðhestar eru á víð og dreif um Braggann.Erna Elínbjörg segir að það geti verið erfitt að fá almennilegan kaffibolla úti á landsbyggðinni og því sé kaffið fengið beint frá bónda í Kólumbíu. Innan um kaffiilminn og hráfæðiskökurnar í Bragganum er unnið að postulíni sem stillt er upp eins og litlu ævintýri.Litlir ævintýralegir karlar.„Ég fann þennan litla karl á markaði í Danmörku og fannst svo sjarmerandi að setja þennan kúreka með fínlegu postulíni. Ég hef verið að nota gömul leikföng í myndlistina og mér finnst skemmtilegt að blanda saman sögum og ævintýrum. Ég vil helst nota framandi hluti og setja saman með gömlum nostalgískum hlutum,“ segir Erna Elínbjörg Skúladóttir.
Mest lesið Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Lífið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Tónlist Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Lífið Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Tónlist Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Tilkynntu óvart dauða konungsins Lífið Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum Lífið „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Lífið Fleiri fréttir Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Sjá meira