Hönnuðu stafrænan ratleik fyrir ferðamenn Kristjana Arnarsdóttir skrifar 9. júlí 2013 08:00 Ragnar Hrafnkelsson og Smári Gunnarsson hönnuðu appið Galdrastafi. Appinu má líkja við stafrænan ratleik sem hugsaður er fyrir ferðamenn. „
Við vildum búa til eitthvað skapandi sem tengir saman sögu og menningu Vestfjarða,“ segir Smári Gunnarsson, sem hannað hefur appið Galdrastafi ásamt Ragnari Hrafnkelssyni. Appið er hannað fyrir ferðamenn sem sækja Vestfirði heim, en skilyrði er að þeir hafi iPhone, iPad eða iPod touch við höndina. Appið er eins konar stafrænn ratleikur og er notkun þess einföld. „Þegar þú ert komin með Galdrastafi í símann þá skannarðu svokallaðan QR-kóða með appinu á þar til gerðum skiltum sem komið hefur fyrir á tíu stöðum víðs vegar um Vestfirði. Þegar búið er að skanna kóðann aflæsist verkið og það spilast í símtækinu,“ segir Smári. Hvert verk fjallar beint eða óbeint um þann stað sem skiltunum hefur verið komið fyrir á. Smári og Ragnar fengu um tuttugu listamenn með sér í verkefnið en flestir þeirra eiga rætur að rekja til Vestfjarða. Svavar Knútur, Borko, Ylja og For a minor reflection eiga öll tónverk í appinu. „Galdrastafir er fyrsta stóra snjallsímaverkefnið sem tengist Vestfjörðum og þetta verður vonandi til þess að fólk sjái betur kostina í að nota þessa tækni í tengslum við ferðaþjónustu á svæðinu,“ segir Smári. Appið er ókeypis og er þegar fáanlegt í App Store fyrir iOS-kerfi, bæði á ensku og á íslensku. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni Galdrastafir.is. Galdrastafir from Westfjords iPhone App on Vimeo.
Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Sjá meira