Bara konur við háborð Rótarýklúbbs Akureyrar Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 9. júlí 2013 13:45 "Ég var fengin til að halda erindi á fundi klúbbsins og í kjölfarið var mér boðið að ganga í hann,“ segir Rannveig um inngöngu sína í Rótarýklúbb Akureyrar árið 2006. "
Það er gaman að segja frá því að af sex manna stjórn í klúbbnum sitja forseti, ritari og gjaldkeri við háborð á fundum og nú eru konur í öllum þeim embættum. Það hefur aldrei gerst áður. Auðvitað er pínu sorglegt að árið 2013 skuli þetta heyra til tíðinda en það gerir það samt. Hingað til hefur aldrei verið nema ein kona í stjórn hverju sinni," segir Rannveig Björnsdóttir, sem nýlega var kjörin forseti Rótarýklúbbs Akureyrar. En var ekki Rótarý karlaklúbbur í byrjun? "Jú, algerlega, og þegar fyrsta konan gekk í Rótarýklúbb Akureyrar gengu nokkrir karlar úr honum. Voru alfarið á móti inngöngu kvenna," upplýsir hún. "En nóta bene, nú eru það karlarnir sem kjósa okkur." Klúbburinn var stofnaður formlega árið 1940. Rannveig kveðst hafa gengið í hann árið 2006 og á undan henni hafi verið þar fimm konur. Hún rifjar upp hvernig á því stóð að hún gekk í klúbbinn í upphafi. "Ég var fengin til að flytja erindi á fundi klúbbsins og í kjölfarið var mér boðið að ganga í hann, sem ég þáði. Þetta er notalegur og fræðandi félagsskapur og ég virtist strax falla vel inn í hópinn. Mér finnst starfið þar vera eins og símenntun." Býst Rannveig við því að breyta eitthvað áherslum klúbbsins úr forsetastóli sínum? "Nei, klúbburinn sinnir ýmsum samfélagsstörfum í nærumhverfinu og mun halda því áfram. Hann hefur látið til sín taka í skógrækt alveg frá upphafi. Við eigum land inni í Eyjafjarðarsveit, svonefndan Botnsreit. Þar erum við með skógrækt, göngustíga og brýr og þetta er alveg yndislegt svæði sem opið er almenningi." Rannveig segir stærstan hluta af mánaðargjaldinu ganga til alheimssamtaka Rótarý og helsta markmið þeirra hafi um árabil verið að útrýma mænuveiki í heiminum, sem nú virðist vera að takast. "Það er alltaf erfitt að ná til fjarlægustu og fátækustu hluta heimsins með bólusetningar en nú er talið að árið 2014 hilli undir að heimurinn verði mænuveikilaus," lýsir hún og bætir við: "Rótarý hefur tekið mikinn þátt í mannúðarmálum erlendis, en til margra ára hefur átak í útrýmingu mænuveiki verið aðaláhersluatriðið í starfinu." Félagar í Rótarýklúbbi Akureyrar eru 27 sem stendur, að sögn Rannveigar, en hún segir tvo nýja félaga verða tekna inn strax eftir sumarfrí. Hún kveðst gjarnan vilja fjölga enn frekar í klúbbnum "Við höfum kannski ekki verið nógu sýnileg og dugleg að kynna það góða starf sem við erum að vinna," segir hún. "Það er eitt af því sem ég ætla að leggja áherslu á á þessu starfsári."
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira