Samfélags-app sem einfaldar djammið Kristjana Arnarsdóttir skrifar 2. júlí 2013 09:30 „
Við félagarnir prófuðum þetta um helgina og þetta var algjör snilld,“ segir Guðmundur Sveinsson, tölvunarfræðingur hjá hugbúnaðarfyrirtækinu GlensnelG Software. Guðmundur, eða Gumbó eins og hann er jafnan kallaður, er einn þriggja tölvunarfræðinga sem hannað hafa fyrsta samfélags-app Íslendinga fyrir snjallsíma. Appið kallast „Djamm?“ og er hugsað til að einfalda fólki að undirbúa djammið sem er fram undan.„Þetta virkar þannig að maður skráir sig inn með einum takka. Þá er búinn til notandi út frá þeim upplýsingum sem gefnar eru upp og svo þarf bara að bæta við vinum og svona, eins og á Facebook,“ segir Gumbó. Notendur fá svo skilaboð í símann þegar styttist í djammið. „Við sendum tilkynningu klukkan 18 á djammdeginum, á föstudegi, laugardegi eða á virkum degi þegar það er helgidagur daginn eftir.“ Notendurnir fá meldingu í símann þar sem spurt er: „Er djamm í kvöld?“ og er spurningunni ýmist svarað játandi eða neitandi. „Ef þú segir „já“ ertu merktur í appinu eins og þú sért að fara að djamma. Þá geturðu farið inn í appið og séð hvaða vinir þínir eru líka að fara að djamma og séð hvar þeir eru, ef fólk velur að deila með sér staðsetningunni,“ segir Gumbó og bætir við að einu sinni yfir kvöldið fái notandi meldingu ef annar vinur er í um 50 metra fjarlægð. „Svo er hægt að senda skilaboð í spjallkerfi, þar sem skilaboðin birtast aðeins einu sinni en eyðast svo. Fólk getur því verið að senda skemmtileg skilaboð sín á milli á fylleríi sem sjást bara einu sinni.“ Appið er enn í vinnslu en forprófanir fara nú fram og segir Gumbó að öllum frjálst að skrá sig og vera með. Skráning fer fram inni á slóðinni Glensnelg.com.Þú getur sent vinum þínum skilaboð í gegnum appið og séð hverjir eru á djamminu.Fyrsta samfélags-appið „Djamm?“ verður fyrsta samfélags-app, eða „social app“ okkar Íslendinga. Slík öpp njóta gríðarlegra vinsælda meðal snjallsímaeigenda. Forrit eins og Instagram, Twitter, Facebook og Snapchat teljast öll til sams konar forrita.Hver notandi á sinn eigin prófíl. Þar er hægt að velja sína uppáhalds staði og skrá hvort til standi að djamma um kvöldið.
Mest lesið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Fleiri fréttir Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Sjá meira