Fundu ástina í hvalaskoðun á Húsavík Kristjana Arnarsdóttir skrifar 28. júní 2013 08:00 Þau Alexia og Daniel fundu ástina í hvalaskoðun á Húsavík. Þau gengu í það heilaga á mánudaginn og klæddust íslenskum lopapeysum við athöfnina sem fram fór í Naustavík við Skjálfanda. Mynd/Jóhannes sigurjónsson „
Okkur líður bara eins og þetta hafi verið draumur en við erum með hringa sem staðfesta þetta allt saman,“ segir Daniel Annisius, starfsmaður hvalaskoðunarfyrirtækisins Gentle Giants á Húsavík, sem gekk að eiga hina sænsku Alexiu Askelöf 24. júní. Daniel og Alexia, eða Lia eins og hún er kölluð, starfa bæði hjá Gentle Giants en þau kynntust árið 2007 þegar Alexia hóf störf hjá fyrirtækinu. Á mánudaginn gengu þau í það heilaga og fór athöfnin fram í Naustavík við Skjálfanda. „Þetta var voða rómantískt allt saman. Við kynntumst um borð, með steypireyðar og hnúfubaka allt í kring. Fyrir þremur árum fórum við í starfsmannaferð út í Naustavík, sem er hérna hinum megin við flóann. Þar segir Lia: „Hér ætla ég að gifta mig!“ og síðan þá hefur þetta verið djók innan fyrirtækisins. En öllu gríni fylgir greinilega einhver alvara,“ segir Daníel og hlær.Það var sýslumaðurinn á Húsavík sem gaf þau Daniel og Alexiu saman.Hann segir brúðkaupsdaginn hafa verið draumi líkastur. „Við ferjuðum fólkið yfir flóann í hvalaskoðunarbátnum okkar, Sylvíu, og athöfnin fór fram í fjörunni. Svo kom sólin fram einmitt á meðan á athöfninni stóð sem var alveg frábært. Við fengum veitingastaðinn Pallinn á Húsavík, sem Völundur Snær Völundarson rekur, til að sjá um grillið og svo vorum við með köku í sæluhúsinu. Að því loknu kveiktum við upp í varðeldi og sungum, og sigldum svo heim um miðnætti við flugeldasýningu á meðan hnúfubakarnir blésu og miðnætursólin skein. Þetta var bara eins fullkomið og hægt var að ímynda sér.“Daniel kemur úr alþjólegri fjölskyldu en móðir hans er skosk, faðir hans er þýskur og hann var sjálfur ættleiddur frá Indlandi sjö mánaða gamall. Brúðkaupsgestirnir komu því víða að.Daníel og Lia búa í Svíþjóð yfir vetrartímann, þar sem Lia starfar sem hundaþjálfari en Daníel nemur við Dalarna-háskólann. „Við ákváðum bara þegar við komum til Húsavíkur í vor að nú væri rétti tíminn kominn. Þetta er tólfta sumarið mitt hjá Gentle Giants og sjötta hjá henni, og þar að auki eiga foreldrar hennar þrjátíu ára brúðkaupsafmæli í ár,“ segir Daníel. Hann segist ekki vita til þess að aðrir en þau Lia hafi gift sig í Naustavík. „Ég hef talað við marga gamla sjóara og eins við landeigendur í Naustavík en það man enginn eftir því að einhver hafi gift sig þarna áður,“ segir Daníel, en Naustavík er hluti af Náttfaravíkum sem bera nafn þrælsins sem var í för með Garðari Svavarssyni sem kom til Íslands árið 870 og hafði hér vetursetu fyrstur manna. Spurður að því hvort það standi ekki til að fara í brúðkaupsferð segir Daníel að ferðin verði að bíða fram á haustið. „Það er brjálað gera á sumrin í hvalaskoðuninni svo við verðum bara að bíða eftir að vertíðinni ljúki. Þá skellum við okkur í interrail um Evrópu.“Örlögin réðu ferðinni Alexia Askelöf var rétt tæplega átján ára þegar hún sótti um starf hjá Gentle Giants. Þá hafði Daniel starfað hjá fyrirtækinu í sex ár og þegar hann fór yfir umsóknir ásamt framkvæmdastjóra fyrirtækisins, Stefáni Guðmundssyni, vildi Daniel helst ekki að Alexia yrði ráðin inn þar sem hann taldi hana of unga. Stefáni leist hins vegar vel á umsókn stúlkunnar og réð hana til starfa. „Þetta er búið að vera þvílíkt ævintýri hjá þeim. Dagurinn var líka alveg hreint ólýsanlegur,“ sagði Stefán, sem skipulagði daginn með brúðhjónunum.
Mest lesið Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Menning Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Fleiri fréttir Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Sjá meira