Mesta hækkun frá fyrrasumri Óli Kristján Ármannsson skrifar 19. júní 2013 14:59 Greining Íslandsbanka segir hraða í verðhækkun húsnæðis hafa aukist að undanförnu. Fréttablaðið/Stefán
Hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í maí hefur ekki verið meiri í einum mánuði síðan í júní í fyrra. Þetta kemur fram í umfjöllun Greiningar Íslandsbanka. Hækkunin nam 1,3 prósentum í mánuðinum og er sögð skýrast að mestu af mikilli hækkun á verði íbúða í fjölbýli, en þær hafi hækkað um 1,7 prósent milli mánaða. „Verð sérbýla hækkaði hins vegar um 0,1 prósent á milli mánaða.“ Síðustu 12 mánuði er íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu sagt hafa hækkað um 6,5 prósent, en um 3,2 prósent að raunvirði.Þá er íbúðaverð á landinu öllu sagt hafa hækkað um 0,6 prósent í maí og um 4,8 prósent yfir síðustu tólf mánuði samkvæmt tölum Hagstofunnar, en Þjóðskrá birti í gær vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu. "Hefur íbúðaverð nú hækkað um 19,0 prósent frá því að það náði lágmarki eftir hrun. Raunverð íbúðarhúsnæðis hefur hins vegar hækkað mun minna sökum þeirrar miklu veðbólgu sem hér hefur verið á tímabilinu," segir í umfjöllun Greiningar. "Þannig hefur íbúðaverð hækkað um 1,4 prósent að raunvirði yfir síðustu tólf mánuði og um 5,1 prósent frá því að það náði lágmarki sínu eftir hrun, sem var á fyrri hluta árs 2010." Raunverð íbúðarhúsnæði á landinu öllu er enn sagt ríflega 30 prósentum lægra en það var þegar það stóð hvað hæst í verðbólunni sem var á þessum markaði fyrir hrun, í lok árs 2007.
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira