Eftirlitsiðnaðurinn er ein af ástæðum dýrtíðarinnar Jón Gerald Sullenberger skrifar 17. júní 2013 10:00 Reglugerðafargan, tollar, vörugjöld, sykurskattur Steingríms J., vaskur (VSK) og útþaninn eftirlitsiðnaður hins opinbera er ein helsta ástæða þess hversu hátt dagvöruverð er hér á landi. Hundruð milljóna króna ef ekki milljarðar koma úr vösum almennings til greiðslu á kostnaðarsömum eftirlitsiðnaði sem er nú miklu meira en ofmannaður. Ofan á þetta bætist oftúlkun Matvælastofnunar (MAST) á ESB-reglum, sem telur það heilaga skyldu sína að hindra að hingað berist matvæli frá öðrum löndum en aðildarríkjum ESB. Vörur sem eru ekki síður vandaðar og oft ódýrari í innkaupum en þær sem koma frá ESB því reglugerðafargan ESB kostar gríðarlegar fjárhæðir sem koma illa við buddu neytenda í aðildarlöndunum. Nú eiga íslenskir neytendur að taka þátt í þeim kostnaði hvað sem tautar og raular. Allur kostnaðurinn sem af þessu hlýst bitnar þungt á heimilum landsmanna, sem þegar bera þunga skuldabagga, og fjölskyldur eiga oft erfitt með að ná endum saman í innkaupum.Viðskiptahömlur Ofan á allt þetta bætist að MAST, eftirlitsaðili stjórnvalda og sérstakur umboðsmaður ESB, sér t.d. til þess að ef bandarísk matvara kemst í gegnum trektina hjá stofnuninni þá þarf að fylla út allskyns form og senda inn til samþykktar fyrir hönd ESB. Í kjölfar þess verður að setja límmiða á allar pakkningarnar sem lýsa innihaldi og næringargildi samkvæmt ESB-reglum. Það er vitað að innihaldslýsingar ESB hafa þann höfuðtilgang að vernda hagsmuni evrópskra framleiðenda fyrir utanaðkomandi samkeppni. Þetta heitir á mannamáli viðskiptahömlur. Bandarískir matvælaframleiðendur búa við einhverja öflugustu og ströngustu eftirlitsstofnun heimsins á þessu sviði, sem heitir the Food and Drug Administration (Matvælastofnun Bandaríkjanna). Enda, var það ekki í Bandaríkjunum sem upp komst um hrossakjötshneykslið? Nei, það var innan ESB sem eftirlitsiðnaðurinn svaf á verðinum, sem varð þess valdandi að evrópskir framleiðendur notuðu kjöt af gömlum dráttarklárum í stað nautakjöts. Það mætti halda að bandarískir framleiðendur komist upp með að setja hættuleg efni í matvörurnar sem vel yfir 300 milljónir manna neyta daglega.Bíða spennt eftir aðgerðum Rétt eins og evrópskum kollegum þeirra er bandarískum matvælaframleiðendum gert að upplýsa bæði um innihald og næringargildi matvöru. Þeir tilgreina næringargildið í skammtastærð vörunnar miðað við einstakling, meðan evrópskum framleiðendum er gert að tilgreina næringargildið í hverjum 100 g innihalds. Það er miklu auðskildara og skýrara fyrir einstakling að skoða innihaldslýsingu á bandarískum pakkningum sem miða við eðlilega einstaklingsþörf heldur en þeim evrópsku sem krefst hugarreiknings miðað við 100 g. Matvælaframleiðendur vestra hjálpa neytendum að meta grömm dagneyslu 2.000 hitaeininga með því að merkja innihald matvörunnar í prósentum (%) sem eru auðskiljanlegar. Það er því augljóst hvað neysluskammturinn er stór, t.d. fullur diskur, bolli eða skál. Evrópska aðferðin kallar hins vegar á að neytandinn viti hvað skammturinn er þungur og síðan þarf hann að reikna í huganum miðað við 100 g, hversu mikið af næringarefnum, t.d. fitu, sykri og próteini, er í hverjum skammti. Vonandi mun ný ríkisstjórn leggja áherslu á að einfalda reglugerðafarganið, skera niður eftirlitsiðnaðinn, sem er orðinn þjóðfélagsvandamál, fella niður óþarfa opinberar álögur á matvæli, sem skila litlu í ríkiskassann þegar upp er staðið, og hætta að eltast við óþarfa reglugerðir Evrópusambandsins, sem við eigum enga samleið með. Neytendur og matvöruverslunin bíða spennt eftir jákvæðum aðgerðum nýrrar ríkisstjórnar til þess að lækka matvælakostnað heimilanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 12.04.2026 Halldór Innganga Íslands í ESB: Hvað verður um lífeyrissjóðinn þinn? Júlíus Valsson Skoðun Að kasta ábyrgðinni á aðra Sonja Lind E. Eyglóardóttir Skoðun Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Hnífur í hjarta íslenskrar kvikmyndagerðar Helgi Felixson Skoðun Hólar í Hjaltadal „hér og þar og þá og nú“ Gunnar Rögnvaldsson Skoðun Ljósið elt út í haug Sigurjón Njarðarson Skoðun Dalirnir heilla… eða hvað? Kristinn R Guðlaugsson Skoðun Afvegaleiðing umræðu um ESB Sigurður Kristinn Pálsson Skoðun Er einmanaleiki nýja tóbakið? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Dalirnir heilla… eða hvað? Kristinn R Guðlaugsson skrifar Skoðun Fleiri vilja standa á hálum ís Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ljósið elt út í haug Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Hnífur í hjarta íslenskrar kvikmyndagerðar Helgi Felixson skrifar Skoðun Innganga Íslands í ESB: Hvað verður um lífeyrissjóðinn þinn? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Ábyrgð gallaðs kerfis og þegjandi samfélags! Dagbjört Ósk Steindórsdóttir skrifar Skoðun Að kasta ábyrgðinni á aðra Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal „hér og þar og þá og nú“ Gunnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Landskjörstjórn gerir athugasemd við spurninguna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Börnin í Hveragerði Þorsteinn Hjartarson,Birgitta Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Afvegaleiðing umræðu um ESB Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Er einmanaleiki nýja tóbakið? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „Dæmisögur Jesú“—Líf sem ber hundraðfaldan ávöxt. Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Norsk Óskarsverðlaun og íslensk kreppa Sveinbjörn I. Baldvinsson skrifar Skoðun Þróun orðræðu um dauðann í íslenskri menningu Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði skrifar Skoðun Hér er matur, um mat, frá mat, til fæðubótarefna... Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tryggjum fæðu- og eldsneytisöryggi með uppbyggingu á Dysnesi Pétur Ólafsson skrifar Skoðun Sterk vinnustaðarmenning er lykillinn að góðum árangri Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Nýtt Álftanes á einu kjörtímabili Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Gagnsæi í ákvarðanatöku Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun í breyttri heimsmynd Erna Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Skoðun Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar
Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun