Grunaði bóndinn er ekki faðirinn Stígur Helgason skrifar 13. júní 2013 08:00 Konan bjó með móður sinni, stjúpföður, bróður hans og fleirum á sveitabæ á Snæfellsnesi um langa hríð. Fréttablaðið/gva Fréttablaðið/GVA
Rúmlega áttræður bóndi af Snæfellsnesi, sem grunaður er um að hafa níðst á stjúpdóttur sinni áratugum saman, er ekki faðir þrítugrar dóttur hennar. Þetta er niðurstaða faðernisprófs sem lögreglan á Akranesi lét gera í þágu rannsóknar málsins, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Ekki er útlit fyrir að úr því fáist skorið hver er faðir dótturinnar. Konan, sem er um fimmtugt, hefur greint frá því að tveir bræður bóndans hafi einnig misnotað sig þegar hún bjó á sveitabænum á Snæfellsnesi ásamt stjúpföður sínum og öðrum bróðurnum. Þeir létust hins vegar báðir fyrir áratug. Bóndinn sætir nú nálgunarbanni og er bannað að koma nálægt stjúpdóttur sinni fyrrverandi eða hafa samband við hana með nokkrum hætti. Áður hafði hann setið í gæsluvarðhaldi frá því í janúar og fram í byrjun apríl. Konan er verulega greindarskert vegna heilaskaða sem hún hlaut í æsku. Málið hófst í ársbyrjun þegar ófeðruð dóttir konunnar uppgötvaði að maður hennar hafði beitt móður hennar kynferðislegu ofbeldi um nokkurt skeið. Þau höfðu öll búið saman á Vesturlandi. Tengdasonur konunnar viðurkenndi brotin og dóttirin hefur slitið við hann samvistum. Samkvæmt heimildum blaðsins var þætti tengdasonarins vísað til Ríkissaksóknara fyrir um mánuði en engin ákæra hefur verið gefin út á hendur honum enn. Við yfirheyrslur hjá lögreglu í tengslum við þau brot greindi konan frá ofbeldi fyrrverandi stjúpföður síns, bóndans á Snæfellsnesi. Rannsókn á þætti hans er á lokastigi hjá lögreglu.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira