Ormagryfja misnotkunar opnaðist í kjölfarið á kæru 23. mars 2013 07:00 Konan býr nú með dóttur sinni á Vesturlandi. Tengdasonurinn er farinn af heimilinu. Gamli maðurinn sem nú situr í gæsluvarðhaldi býr á sveitabæ á Snæfellsnesi.Fréttablaðið/gva
Gæsluvarðhald yfir 82 ára bónda á Snæfellsnesi, sem grunaður er um langvinn kynferðisbrot gegn þroskaheftri stjúpdóttur sinni, rennur út á þriðjudaginn kemur. Ekki liggur fyrir hvort óskað verður eftir framlengingu á því. Ríkisútvarpið sagði fyrst frá fjölskylduharmleiknum á laugardaginn fyrir viku. Svo virðist sem konan hafi sætt langvarandi misnotkun af hálfu minnst fjögurra karlmanna sem allir tengdust henni fjölskylduböndum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hófst málið í ársbyrjun þegar ófeðruð dóttir konunnar uppgötvaði að maður hennar hafði beitt móður hennar kynferðislegu ofbeldi um nokkurt skeið. Þau höfðu öll búið saman á Vesturlandi. Dóttirin, sem er um þrítugt, fór með málið til lögreglunnar og þegar í stað hófst umfangsmikil rannsókn hjá lögreglunni á Akranesi. Hún hefur í kjölfarið slitið samvistum við manninn og býr nú ein með móður sinni. Konan, sem er nú um fimmtugt, er verulega greindarskert eftir heilaskaða sem hún hlaut í æsku. Tengdasonur hennar, maður um fertugt, gekkst fljótlega við því að hafa brotið gegn henni. Hann sætti aldrei varðhaldi. Rannsókn þess máls er á lokastigi og verður það fljótlega sent Ríkissaksóknara til ákærumeðferðar. Við rannsókn þess opnaðist hins vegar ormagryfja, þegar konan greindi frá kynferðislegu ofbeldi sem hún hefði þurft að sæta í um fjóra áratugi af hálfu fyrrverandi stjúpföður síns, bóndans sem nú situr í gæsluvarðhaldi. Móðir konunnar átti í sambandi við bóndann áratugum saman með hléum og misnotkunin sem konan segist hafa sætt átti sér stað á sveitabæ þeirra á Snæfellsnesi. Nýjustu brotin munu vera frekar nýleg. Þar með er ekki öll sagan sögð, því að konan hefur einnig borið að hún hafi verið beitt kynferðislegu ofbeldi af tveimur bræðrum stjúpans fyrrverandi. Annar þeirra bjó á bænum. Báðir létust árið 2003. Rannsókn á máli gamla mannsins er skammt á veg komin og að því er fram kom í fréttum RÚV hefur hann ekki játað sök. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira