Viljum vinna riðilinn Stefán Árni Pálsson skrifar 12. júní 2013 06:00 Óreyndir leikmenn íslenska landsliðsins þreyta erfitt próf gegn Hvít-Rússum í dag. Hér er Aron með Ólafi Guðmundssyni. fréttablaðið/vilhelm „
Standið á liðinu er bara ágætt fyrir leikinn,“ sagði Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari Íslands í handknattleik, fyrir leikinn gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik sem fram fer í Danmörku á næsta ári. Strákunum dugir eitt stig í dag til að tryggja sér sigur í riðlinum og þar með sæti í öðrum af efstu tveimur styrkleikaflokkunum þegar dregið verður í riðla fyrir EM í Danmörku þann 21. júní næstkomandi. Landsliðið var nýkomið til Minsk þegar Fréttablaðið náði tali af landsliðsþjálfaranum en hann þurfti að gera eina breytingu á hópnum eftir að út var komið. „Arnór Þór Gunnarsson tognaði á nára á æfingu í gær og verður því ekki með annað kvöld. Finnur Ingi Stefánsson kemur því inn í hópinn í hans stað.“ Mikil forföll eru í íslenska landsliðshópnum og vantar alls sjö lykilleikmenn í liðið. „Við höfum ekki haft mikinn tíma til undirbúnings en þessi breyting á hópnum hefur það í för með sér að við þurfum að fara vel í gegnum öll leikkerfi og einnig ákveðin atriði sem liðið þarf að slípa saman fyrir leikinn. Þetta verður ákveðið próf fyrir suma leikmenn liðsins og gaman að sjá hvernig menn standast það.“ Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir heimamenn í kvöld og berjast þeir fyrir lausu sæti á lokakeppni Evrópumótsins. „Það verður án efa fullt hús á morgun og mikil stemning. Hvíta-Rússland er með frábært lið og erfitt við að eiga, sérstaklega á heimavelli. Við setjum stefnuna á sigur í riðlinum til að vera eins í góðri stöðu og við getum þegar dregið verður í riðla á EM.“ Leikurinn hefst klukkan 15.00 í dag og er næstsíðasti leikur Íslands í riðlinum. Lokaleikurinn verður gegn Rúmenum í Laugardalshöllinni á sunnudagskvöld klukkan 19.45 en það verður einnig kveðjuleikur Ólafs Stefánssonar með landsliðinu.
Handbolti Mest lesið Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Körfubolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Íslenski boltinn Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Fleiri fréttir Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Sjá meira