Ríkisstjórn sérhagsmuna Margrét K. Sverrisdóttir skrifar 24. maí 2013 06:00 Fráfarandi ríkisstjórn var ríkisstjórn almannahagsmuna sem hafði jöfnuð og velferð að leiðarljósi og stuðlaði markvisst að hvoru tveggja, fyrst og fremst með traustri efnahagsstjórn sem náði stjórn á fjárlagahalla, verðbólgu og atvinnuleysi eftir allsherjarhrun efnahagslífsins. Nú tekur við ný ríkisstjórn sérhagsmuna þegar flokkar taka völdin sem jafnan hafa verið kallaðir „helmingaskiptaflokkar“ vegna þess að þegar þeir hafa setið saman að völdum, hafa þeir gætt þess að skipta með sér völdum og sporslum. Kosningaloforðin og efndirnar Í kosningabaráttunni ítrekuðu Samfylking og Vinstri græn að það væri óábyrgt að lofa kjósendum miklum kjarabótum. Kosningaloforð Framsóknar og Sjálfstæðisflokks voru hins vegar mjög kostnaðarsöm og gengu þannig í berhögg við baráttuna við minni verðbólgu og aukinn stöðugleika. Flokkarnir lögðu enga áherslu á lækkun skulda ríkissjóðs eða stöðugleika, gylliboðin voru allsráðandi. Og nú hafa helmingaskiptaflokkarnir birt stjórnarsáttmála sinn. Þar sem leiðtogarnir eru ungir og ráðherraliðið nýtt, væntu margir þess að sjá jákvæð merki um kynslóðaskiptin og því vekur furðu hve gamaldags viðhorf birtast í plagginu. Viðræðum við Evrópusambandið verður rift án þess að þjóðin fái að vita hvað er í boði og kjósa um það. Krónan, einn veikasti og smæsti gjaldmiðill sem um getur, á að halda sér. Umhverfismál eru sett niður og það er gælt við þjóðernishyggju með þjóðlegum áherslum og upphafningu ungmennafélaga í anda Framsóknarflokksins, sem vill þó ekki kannast við fortíð sína. Og málin verða sett í nefnd. Skýrasti fyrirboðinn Skýrasti fyrirboði um það sem koma skal er að forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar er að afnema veiðigjald á útgerðina, sem áætlað var að gæti skilað 40-50 milljörðum í þjóðarbúið. Þeim liggur mest á að hlífa stuðningsmönnum sínum, útgerðarmönnunum, við að greiða sanngjarnt gjald af nýtingu auðlindar okkar. Þar er sannarlega staðinn vörður um sérhagsmuni en ekki almannahagsmuni. Mikilvægt er að fulltrúar nýrrar stjórnarandstöðu veiti ríkisstjórninni málefnalegt og uppbyggilegt aðhald og þó að sporin hræði varðandi samstarf Framsóknar og Sjálfstæðisflokks á umliðnum áratugum, bindur þjóðin sannarlega vonir við að nýrri ríkisstjórn takist vel til í verkum sínum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir Skoðun Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ég, glæpamaður Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson Skoðun Þróun orðræðu um dauðann í íslenskri menningu Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun „Dæmisögur Jesú“—Líf sem ber hundraðfaldan ávöxt. Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Norsk Óskarsverðlaun og íslensk kreppa Sveinbjörn I. Baldvinsson skrifar Skoðun Þróun orðræðu um dauðann í íslenskri menningu Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði skrifar Skoðun Hér er matur, um mat, frá mat, til fæðubótarefna... Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tryggjum fæðu- og eldsneytisöryggi með uppbyggingu á Dysnesi Pétur Ólafsson skrifar Skoðun Sterk vinnustaðarmenning er lykillinn að góðum árangri Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Nýtt Álftanes á einu kjörtímabili Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Gagnsæi í ákvarðanatöku Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun í breyttri heimsmynd Erna Björnsdóttir skrifar Skoðun Rödd ungs fólks á Seltjarnarnesi þarf að heyrast Auður Halla Rögnvaldsdóttir skrifar Skoðun Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir skrifar Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Rúllum út rauða dreglinum Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Ég, glæpamaður Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Með svipuna á bakinu Rannveig Eyja Árnadóttir skrifar Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að fordæma stríðið í Íran, Líbanon og Gaza Einar Baldvin Árnason skrifar Skoðun Sterk viska í stafni íslenskrar kjarabaráttu Freyr Snorrason skrifar Skoðun Gervigreind, ábyrgð og framtíð samfélags okkar Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Mjallhvít og dvergarnir sjö Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Óveðrið tekur undir með atvinnulífinu Hugrún Elvarsdóttir,Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Sjá meira
Fráfarandi ríkisstjórn var ríkisstjórn almannahagsmuna sem hafði jöfnuð og velferð að leiðarljósi og stuðlaði markvisst að hvoru tveggja, fyrst og fremst með traustri efnahagsstjórn sem náði stjórn á fjárlagahalla, verðbólgu og atvinnuleysi eftir allsherjarhrun efnahagslífsins. Nú tekur við ný ríkisstjórn sérhagsmuna þegar flokkar taka völdin sem jafnan hafa verið kallaðir „helmingaskiptaflokkar“ vegna þess að þegar þeir hafa setið saman að völdum, hafa þeir gætt þess að skipta með sér völdum og sporslum. Kosningaloforðin og efndirnar Í kosningabaráttunni ítrekuðu Samfylking og Vinstri græn að það væri óábyrgt að lofa kjósendum miklum kjarabótum. Kosningaloforð Framsóknar og Sjálfstæðisflokks voru hins vegar mjög kostnaðarsöm og gengu þannig í berhögg við baráttuna við minni verðbólgu og aukinn stöðugleika. Flokkarnir lögðu enga áherslu á lækkun skulda ríkissjóðs eða stöðugleika, gylliboðin voru allsráðandi. Og nú hafa helmingaskiptaflokkarnir birt stjórnarsáttmála sinn. Þar sem leiðtogarnir eru ungir og ráðherraliðið nýtt, væntu margir þess að sjá jákvæð merki um kynslóðaskiptin og því vekur furðu hve gamaldags viðhorf birtast í plagginu. Viðræðum við Evrópusambandið verður rift án þess að þjóðin fái að vita hvað er í boði og kjósa um það. Krónan, einn veikasti og smæsti gjaldmiðill sem um getur, á að halda sér. Umhverfismál eru sett niður og það er gælt við þjóðernishyggju með þjóðlegum áherslum og upphafningu ungmennafélaga í anda Framsóknarflokksins, sem vill þó ekki kannast við fortíð sína. Og málin verða sett í nefnd. Skýrasti fyrirboðinn Skýrasti fyrirboði um það sem koma skal er að forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar er að afnema veiðigjald á útgerðina, sem áætlað var að gæti skilað 40-50 milljörðum í þjóðarbúið. Þeim liggur mest á að hlífa stuðningsmönnum sínum, útgerðarmönnunum, við að greiða sanngjarnt gjald af nýtingu auðlindar okkar. Þar er sannarlega staðinn vörður um sérhagsmuni en ekki almannahagsmuni. Mikilvægt er að fulltrúar nýrrar stjórnarandstöðu veiti ríkisstjórninni málefnalegt og uppbyggilegt aðhald og þó að sporin hræði varðandi samstarf Framsóknar og Sjálfstæðisflokks á umliðnum áratugum, bindur þjóðin sannarlega vonir við að nýrri ríkisstjórn takist vel til í verkum sínum.
Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar
Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að fordæma stríðið í Íran, Líbanon og Gaza Einar Baldvin Árnason skrifar
Skoðun Óveðrið tekur undir með atvinnulífinu Hugrún Elvarsdóttir,Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar