Byrjar betur en forverarnir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. maí 2013 06:45 Róbert Örn Óskarsson, 26 ára gamall. Fyrstu 4 leikir: 2 mörk á sig - 10 stig - lék einn leik sumarið 2012
89. mínúta á Kópavogsvelli á þriðjudagskvöldið. Róbert Örn Óskarsson er búinn að spila óaðfinnanlega allan leikinn, verja nokkrum sinnum vel og grípa vel inn í þegar það á við. Stigin þrjú eru að leggja af stað til Hafnarfjarðar þegar FH-liðið fær á sig klaufalega vítaspyrnu. Róbert Örn ætlar ekki að láta þessi stig renna FH-liðinu úr greipum, ekki frekar en þegar hann varði á mikilvægum tímapunktum í fyrstu þremur leikjunum. Róbert klikkar heldur ekki á ögurstundu, ver víti Blikans Árna Vilhjálmssonar glæsilega og tryggir FH þrjú gullin stig á móti einu af sterkari liðum Pepsi-deildarinnar. Maður leiksins í tveimur leikjum í röð Eftir fjóra umferðir lítur allt út fyrir að ákvörðun Heimis Guðjónssonar sé að heppnast fullkomlega. FH hefur aðeins fengið á sig tvö mörk og hefur náð í 10 stig af 12 mögulegum. Róbert Örn Óskarsson hefur fengið 7,3 í meðaleinkunn fyrir þessa fjóra leiki og hefur verið valinn maður leiksins í síðustu tveimur leikjum. Hann er auk þess besti leikmaður 4. umferðar Pepsi-deildarinnar að mati blaðamanna Fréttablaðsins. „Ég gerði nokkur mistök á undirbúningstímabilinu sem ég vissi að ég myndi gera. En ég vil miklu frekar gera mistök yfir veturinn en á miðju tímabili,“ sagði Róbert í viðtali við Fréttablaðið fyrir leikinn á móti Blikum. Þetta var annar sjónvarpsleikur hans í röð og í þeim báðum hefur hann verið besti maðurinn á vellinum að mati fulltrúa Fréttablaðsins á leiknum. Þó að Róbert Örn Óskarsson hafi aðeins átt einn leik að baki í efstu deild (á móti ÍBV í Eyjum í fyrra) þá er ekki eins og hann sé fæddur í gær. Hann er orðinn 26 ára gamall og á að baki tímabil með ÍR (1. deild 2011) og BÍ/Bolungarvík (2. deild 2009 og 2010). Hann naut einnig þess að vinna með landsliðsmarkverðinum Gunnleifi Gunnleifssyni á síðustu leiktíð sem Róbert hefur talað sjálfur um að hjálpi sér við að standa í þessum sporum. Það má heldur ekki gleyma að á bekknum nýtur Róbert stuðnings reynsluboltans Daða Lárussonar, sem er reynslumesti markvörður FH í efstu deild. En hversu góð byrjun er þetta? Fréttablaðið skoðaði af þessu góða tilefni byrjun Róberts í samanburði við síðustu fjóra aðalmarkverði FH-inga í efstu deild en það eru þeir Gunnleifur Gunnleifsson (2010-12), Daði Lárusson (2001-09), Stefán Arnarson (1991-1995) og Halldór Halldórsson (1985-87 og 1989-90). Aðrir markverðir hafa komið inn í forföllum þeirra. Það er óhætt að segja að Róbert skjóti hinum fjórum FH-markvörðunum ref fyrir rass. Hann fékk á sig færri mörk en þeir allir í fyrstu fjórum leikjunum og FH-liðið er líka með fleiri stig í húsi. Í viðbót við það varði Róbert eina vítið sem hann reyndi við en þrír af hinum fjórum fengu á sig mark úr víti í fyrstu fjórum leikjunum og engum þeirra tókst að verja víti. Hér á síðunni má sjá samanburð á byrjun þessara fimm markvarða á sínu fyrsta tímabili sem aðalmarkvörður FH-liðsins í efstu deild.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Allir verði að sjá æfingar Thelmu Sport „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Íslenski boltinn Keflvíkingur keppti í Squid Game Íslenski boltinn Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Íslenski boltinn Sérfræðingarnir svara: Albert synti gegn straumnum Íslenski boltinn Hætta með maraþonhlaup á HM í frjálsum Sport Hljóp heilt maraþonhlaup á göngum skólans síns Sport Sleit hásin í upphitun og missir af HM í fótbolta Fótbolti Vinícius Júnior segir mikilvægt að Yamal láti í sér heyra Fótbolti Sagði dómarann láta eins og hann væri á túr Fótbolti Fleiri fréttir „Dreymir að minnsta kosti um Evrópu“ Besta-spá 2026: Vöðvarnir hnyklaðir Sérfræðingarnir svara: Albert synti gegn straumnum Keflvíkingur keppti í Squid Game KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Þroskamerki fyrir KR: „Það sem hefur vantað er andlegur styrkur „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Varla spilað fótbolta í fjögur ár en skaut Gróttu áfram Damir skaut Grindvíkinga áfram í vítakeppni Viktor í stuði á Skaganum og dramatík í Egilshöll Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll „Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Ægir Jarl mættur til Fram Sjá meira