Stalínísk stórmennska í Gálgahrauni 23. maí 2013 06:00 Vegagerðin og Garðabær hafa skilað innanríkisráðherra greinargerð vegna nýs Álftanesvegar um Gálgahraun. Í greinargerðinni er því hafnað að hægt sé að koma til móts við óskir Hraunavina og annarra náttúruverndarsinna um annað vegstæði. Hugsanlegt sé þó að í stað mislægra gatnamóta megi setja hringtorg austan við Prýðahverfi. Greinargerðin ber þess vitni að Vegagerðin og Garðabær skilja ekki á hvaða grundvallaratriði andstaðan við nýjan Álftanesveg um Gálgahraun byggir. Framkvæmdaaðilar neita að horfast í augu við þá staðreynd að allt hraunið norðan Álftanesvegar er á náttúruminjaskrá sem er ígildi friðunar. Aðeins á eftir að ákveða í hvaða friðunarflokk hraunið á að fara. Orðið náttúruminjaskrá kemur ekki fyrir í greinargerðinni enda hefði það þýtt að allur rökstuðningur fyrir vegarlagningunni hefði misst marks. Við nýju greinargerðina er ýmislegt að athuga. Vegagerðin gerir enga tilraun til þess að koma með tillögu að bættum núverandi Álftanesvegi með hringtorgum og umferðarstýrðum ljósum eins og tíðkast um víða veröld. Svo virðist sem engin framför hafi orðið í gerð umferðarmannvirkja frá því að starfsmenn Vegagerðarinnar luku námi um miðja síðustu öld. Eina lausnin sem þeir sjá er að að eyðileggja einstakt ósnortið hraun. Vegagerðin var beðin um að koma með lausn sem kæmi til móts við þá sem vilja hlífa hrauninu en varð ekki við þeirri beiðni. Brengluð fjárhagshlið Fjárhagshlið greinargerðarinnar er brengluð. Þar eru aðeins tveir kostir bornir saman: óbreyttur vegur um Gálgahraun fyrir 800 milljónir eða að núverandi Álftanesvegur verði lagður í stokk fyrir þrjá milljarða. Þessu er haldið fram í þeirri von að almenningur þekki ekki umfang framkvæmdarinnar. Sannleikurinn er sá að það er ekki aðeins verið að leggja nýjan einfaldan Álftanesveg fyrir 800 milljónir. Þetta er fyrsti áfangi af þremur sem fékk reyndar 1,1 milljarð á fjárlögum til þriggja ára, ekki 800 milljónir. Annar áfangi er tvöföldun Álftanesvegar frá Engidal að stóru hringtorgi í miðju Gálgahrauni og þriðji áfangi verður framlenging Vífilsstaðavegar frá norðri til suðurs þvert yfir Gálgahraun. Miðað við kílómetrafjölda munu rúmir tveir milljarðar króna fara í vegaframkvæmdir í Gálgahrauni. Þá er ótalinn milljónakostnaður vegna hljóðmana sem hljóta að verða settar upp við báðar hraðbrautirnar. Vegagerðin og Garðabær sáu ekki ástæðu til þess að kalla Hraunavini til viðræðna svo finna mætti lausn á legu Álftanesvegar. Í stað þess skal látið sverfa til stáls af stalínískri stórmennsku. Gaman verður að sjá hver það verður sem ræsir fyrstu jarðýtuna í Gálgahrauni og leggur til atlögu við klettaborgirnar. Þá mega álfar og dvergar fara að vara sig. Og man nokkur hvað verður um þann sem svíkur sína huldumey? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar