Ljónin hans Gumma nældu í gullið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. maí 2013 07:00 Guðmundur Þórður faðmar Oliver Roggisch að sér. Nordicphotos/Getty
Rhein-Neckar Löwen undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar vann á sunnudaginn EHF-bikarinn eftir 26-24 sigur á Nantes í Frakklandi. Titillinn er sá fyrsti sem félagið vinnur í ellefu ára sögu þess. Stefán Rafn Sigurmannsson fékk gullverðlaun í afmælisgjöf. „Rhein-Neckar Löwen hefur verið nálægt þessu svo oft áður. Árum saman hefur liðið barist um titla, komist í undanúrslit eða tapað í úrslitum. En aldrei kom gullið fyrr en nú,“ segir þjálfarinn Guðmundur Þórður Guðmundsson kampakátur. Hann segir úrslitaleikinn hafa verið afar erfiðan enda aðstæður sérstakar. „Við vorum auðvitað að spila úrslitaleik á útivelli,“ segir Guðmundur en leikurinn fór fram á heimavelli franska liðsins sem Gunnar Steinn Jónsson leikur með. Guðmundur segir gulklædda heimamenn hafa spilað afar fast og komist upp með það á köflum. „Við lögðum upp með það að halda ró okkar og láta mótlætið ekki trufla okkur,“ segir Guðmundur. Hann viðurkennir að það hafi verið sérstök tilfinning að fagna titli frammi fyrir stútfullri höll af stuðningsmönnum Nantes. „Það var blístrað á okkur þegar við fögnuðum en maður var svo upptekinn í gleðinni að maður hugsaði ekki um það. Fólkið stóð þó upp í lokin og klappaði fyrir okkur.“Mögnuð endurkomaSvo virðist sem Alexander Petersson hafi reynt að hlífa öxl sinni þegar hann handlék bikarinn.Nordicphotos/GettyGuðmundur játar því að sigurinn hafi mikla þýðingu fyrir sig persónulega. Það sé mikill heiður að vera þjálfarinn sem skilar langþráðum titli til félagsins. „Mér tókst að ná silfri á Ólympíuleikunum 2008 með landsliðinu sem var stórkostlegt. Svo nældum við í brons á Evrópumótinu 2010. Nú má segja að gullið sé komið,“ segir Guðmundur stoltur. Hann minnir á að nú séu aðeins tvær Evrópukeppnir líkt og í fótboltanum, Meistaradeildin og EHF-bikarinn. Liðið hafi spilað tólf leiki á leið sinni í keppninni sem bætist við fjörutíu leiki sem liðið spili í deild og bikar. Evrópuleikirnir hafi tekið sinn toll. „Þessi keppni hefur kostað okkur þrjá með mjög alvarleg meiðsli,“ segir Guðmundur. Tveir leikmenn hafi slitið krossband auk þess sem hornamaðurinn Uwe Gensheimer sleit hásin í vetur. Meiðsli Gensheimer urðu til þess að Guðmundur fékk Stefán Rafn Sigurmannsson til Ljónanna. Óhætt er að segja að frammistaða Stefáns, sem einmitt fagnaði 23 ára afmæli sínu á sunnudaginn, hafi farið fram úr björtustu vonum. „Hann hefur staðið sig frábærlega og brúað bilið á meðan Gensheimer var frá,“ segir Guðmundur. Stefán skoraði eitt mark í leiknum og Alexander Petersson tvö. Gensheimer kom inn í leikmannahóp Löwen fyrir úrslitahelgina í Nantes. Ljónin lögðu Göppingen að velli í undanúrslitum á laugardag og unnu svo sigur í úrslitaleiknum 24 tímum síðar. „Gemsheimer átti einhverja mögnuðustu endurkomu sem ég hef orðið vitni að,“ segir Guðmundur um hornamanninn. Gensheimer skoraði fimm mörk á tíu mínútum gegn Göppingen. Í úrslitaleiknum skoraði hann tíu mörk á 21. mínútu. „Það var magnað að fylgjast með frammistöðu hans eftir að hafa verið frá í sex mánuði vegna hásinarslits.“Verður kátt í höllinni Leikmenn Löwen fagna sigrinum í Nantes.Nordicphotos/GettyGuðmundur og félagar flugu heim til Þýskalands strax um kvöldið. Hann segir leikmenn hafa fengið leyfi til að fagna sigrinum vel, góð stemning hafi verið í flugvélinni og leikmenn svo haldið áfram í Mannheim um nóttina. „Þeir skemmtu sér örugglega margir fram á morgun,“ segir Guðmundur. Hann hafi hins vegar farið í rúmið eins fljótt og færi gafst enda uppgefinn eftir helgina. Ljónin sitja í 2. sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir. Þrjú efstu sætin gefa sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Lokaleikurinn fer fram í Mannheim þann 8. júní. Þá verður slegið upp mikilli veislu. „Það verður mikil sigurhátíð í höllinni okkar sem 13.200 áhorfendur munu fylla,“ segir Guðmundur.
Handbolti Tengdar fréttir Evrópumeistaratitill í afmælisgjöf Alexander Petersson, Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar í Rhein-Neckar Löwen urðu í dag Evrópumeistarar í handknattleik eftir 26-24 sigur á Nantes í úrslitaleik EHF-bikarsins í Frakklandi. 19. maí 2013 17:51 Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Fótbolti Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Fótbolti Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Fótbolti Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Fótbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Handbolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira
Evrópumeistaratitill í afmælisgjöf Alexander Petersson, Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar í Rhein-Neckar Löwen urðu í dag Evrópumeistarar í handknattleik eftir 26-24 sigur á Nantes í úrslitaleik EHF-bikarsins í Frakklandi. 19. maí 2013 17:51