Skoðun

Kæfum ekki hjarta miðbæjarins

Þóra Andrésdóttir skrifar

Nú er í kynningu nýtt deiliskipulag á dýrmætum reit í hjarta borgarinnar, Landsímareitnum í Kvosinni.

Ég skora á fólk að kynna sér það vel og senda inn athugasemdir á skipulag@reykjavik.is fyrir 23.maí. Það telst annars samþykkt, þótt það hafi mótmælt áformum um hótelrekstur á þessum reit á ekkihotel.is ásamt 17.000 öðrum.

Framtíð dýrmætustu almenningssvæða Reykjavíkur er í húfi. Eiga hagsmunir lóðareiganda sem þarna hefur keypt upp eignir að vega þyngra en hagsmunir almennings? Er borgin ekki fyrir okkur borgabúa? Almenningssvæðin þrjú, Austurvöllur, Ingólfstorg og Fógetagarður eru mikið sótt af mismunandi hópum fólks. Það mun verða fyrir truflun meðan á fyrirhuguðum framkvæmdum og fornleifagreftri stendur. Einnig mun verslun á þessu svæði raskast.

Með mikla sögu

Á Landsímareitnum eru mörg gömul hús með mikla sögu, þar á meðal Nasa, gamla Sjálfstæðishúsið og Landsímahúsið eftir Guðjón Samúelsson. Við Vallarstræti eru tvö önnur gömul hús, Brynjólfsbúð og Hótel Vík.

Skipulagstillögur á svæðinu hafa tekið ýmsum breytingum. Í stað þess að rífa húsin í Vallarstrætinu átti að flytja þau á Ingólfstorgið. Því var mótmælt harðlega. Síðan átti borgin að byggja menningarhús á Ingólfstorgi, sem var hætt við. Það stóð kannski aldrei til?

Yfirgnæfa friðuð hús

Nýja deiliskipulagið gerir ráð fyrir háum byggingum á milli gömlu húsanna við Vallarstræti. Þótt hæð þeirra hafi verið lækkuð um eina hæð, munu þær samt yfirgnæfa friðuð hús og bera þau ofurliði. Í stað þess að draga fram sérstöðu þeirra og sögulegt gildi.

Mér finnst Landsímahúsinu, byggingu Guðjóns Samúelssonar, sýnd mikil vanvirðing með því að reisa enn aðra viðbyggingu við það og bæta að auki ofan á það. Þetta mun algjörlega breyta ásýnd hússins og auka skuggavarp inn á Austurvöll. Vart telst það að standa vörð um hagsmuni almennings sem hlýtur að vera frumskylda borgaryfirvalda. Viðbyggingin verður reist á bílaplaninu, alveg út við Kirkjustrætið. Hún mun þrengja mjög að gömlu uppgerðu húsunum hinum megin götunnar, sem og Alþingi. Hótel- eða gistihúsarekstri fylgir mikil umferð. Ekki bara rútur, heldur einnig leigubílar, jeppar, sorpbílar og sendibílar að koma með birgðir af ýmsum toga. Hvar á eiginlega sú aðkoma að vera?

Það eina góða sem kemur út úr nýju deiliskipulagi er að Fógetagarðurinn, elsti kirkjugarður Reykvíkinga, fær svokallaða hverfisvernd.

Annað gildir um hinn lifandi og sögufræga sal í gamla Sjálfstæðishúsinu, Nasa, þar sem tónlistarmenn hafa lengi átt athvarf. Hann verður rifinn og endurgerður sem fjölnota salur innan veggja hótels með útgang út í þröngt Vallarstrætið. Af hverju er Nasasalurinn ekki verndaður, eins og húsafriðunarnefnd hafði lagt til á sínum tíma?

Kæfum ekki hjarta bæjarins. Miðbærinn iðar af lífi og sál í þessari fallegu og hlýju borg sem við eigum. Glötum ekki þeim sjarma sem fylgir gömlum húsum og gömlum götumyndum. Leyfum þeim að njóta sín. Sýnum borginni okkar virðingu og verndum okkar sögulegu byggð. Það er komið nóg af hótelum á þessum litla reit sem við eigum öll.




Skoðun

Sjá meira


×