Skoðun

Skemmdarverk á miðborg Reykjavíkur

Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar
Borgarstjórn Reykjavíkur heldur áfram á þeirri vondu braut að stuðla að byggingu risahótels í hjarta borgarinnar sem mun eyðileggja hið sögufræga Sjálfstæðishús (Nasa), þrengja mjög að almannarýmum og Alþingi Íslendinga, auka skuggavarp á Austurvöll og eyðileggja suðurhlið Ingólfstorgs.

Hagsmunir Reykvíkinga við uppbyggingu miðborgarinnar eru ekki leiðarljós þessarar tillögu og gallarnir á henni voru allir á svokallaðri „verðlaunatillögu“ að deiliskipulagi þessa reits sem nærri 20% kosningabærra manna í Reykjavík hafa mótmælt á síðunni ekkihotel.is.

Ekkert tillit er tekið til þeirra mótmæla í tillögu að deiliskipulagi sem nú hefur verið „auglýst“. Kynning tillögunnar hefur raunar farið mjög lágt miðað við hversu umdeilt málið hefur verið en frestur til að skila athugasemdum við þessa skipulagstillögu er aðeins til 23. maí.

Gallarnir við þessa tillögu eru þessir helstir:

1. Ingólfstorg

Fyrirhugaðar nýbyggingar við sunnanvert Ingólfstorg eru ekki í stíl við þau gömlu hús sem þar eru fyrir þrátt fyrir að svo eigi að vera samkvæmt Þróunaráætlun miðborgarinnar. Nýbyggingum í allt öðrum stíl er troðið þannig á milli gömlu húsanna að ekki gengur hnífur á milli auk þess sem nýbyggingarnar eru hærri en götulína gömlu húsanna og gnæfa yfir þau.

2. Nasasalurinn

Nasasalurinn verður rifinn en hann ætti að friða vegna sögu sinnar og einstæðrar hönnunar. Húsafriðunarnefnd var þeirrar skoðunar þangað til hún kúventi í afstöðu sinni vegna þrýstings frá eiganda hússins. Það er menningarlegt skemmdarverk að rífa þetta gamla góða samkomuhús okkar Reykvíkinga. Hótelsalur á sama stað kemur ekki í staðinn fyrir Nasasalinn.

3. Austurvöllur

Ofan á Landsímahúsið við Austurvöll á að setja kvisti sem skemma þessa sögufrægu byggingu Guðjóns Samúelssonar og auka skuggavarp á Austurvöll. Einnig á að rísa ofan í og aftan við gamla Kvennaskólann (innganginn að Nasa) há bygging sem bera mun litla græna húsið ofurliði og auka enn skuggavarp inn á Austurvöll.

4. Kirkjustræti

Tillagan gerir ráð fyrir nýbyggingu sem framlengir Landsímahúsið alveg að gangstéttinni við Kirkjustræti – með enn meira skuggavarpi inn á Austurvöll. Þessi stóra viðbygging mun loka þeirri fallegu sýn sem er milli Fógetagarðsins og Austurvallar. Í staðinn kæmi mjó gata sem þrengdi mjög að Alþingishúsunum við Kirkjustræti.

5. Umferðarmál

Þessi tillaga lokar augunum vandlega fyrir þeim vandamálum sem eru í uppsiglingu á svæðinu þegar þar verður risið eitt stærsta hótel í Reykjavík. Vandamálin snúa ekki síst að umferð; rútubíla, leigubíla, jeppa og ferðaþjónustuaðila, svo ekki sé talað um sorp og aðra aðdrætti sem risastórt hótel þarf á að halda.

6. Alþingi

Þessi tillaga þrengir mjög að Alþingisreitnum og er í algerri andstöðu við vilja Alþingis sem mótmælt hefur tillögunni harðlega. Er með ólíkindum að borgarstjórn Reykjavíkur ætli að knýja þetta vonda mál í gegn þrátt fyrir eindregin mótmæli Alþingis og stórs hluta borgarbúa.

Ég hvet Reykvíkinga til að mótmæla þessari tillögu með öllum ráðum og skila athugasemdum á netfangið: skipulag@reykjavik.is.




Skoðun

Sjá meira


×