Framtíðarflugvöllur í Vatnsmýri Björn Jón Bragason skrifar 14. maí 2013 10:00 Nú hafa hugmyndir um flugvöll á Hólmsheiði enn á ný skotið upp kollinum og raunar með ólíkindum að stjórnmálamenn sem vilja taka sig alvarlega skuli ljá máls á slíkri framkvæmd. Samkvæmt nýlegri skýrslu Veðurstofunnar yrði flugvöllur á Hólmsheiði lokaður 28 daga á ári. Því mætti líkja við það ef bráðamóttaka Landspítalans væri lokuð 28 daga á ári. Þá hafa flugmenn bent á mikla sviptivinda á Hólmsheiði sem stórauka áhættu flugfarenda. Kostnaðaráætlanir hljóða upp á 17,2 milljarða króna og vandséð að slíkum fjármunum væri vel varið í flugvöll, þegar annar er þegar til staðar sem gagnast mun betur. Í þessu sambandi má nefna að ekki hafa verið til fjármunir til kaupa á nýrri þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna. Á sama tíma eru varla til peningar í galtómum ríkissjóði til að færa alla flugstarfsemi Landhelgisgæslunnar annað, reisa þar flugskýli og alla aðstöðu aftur. Íbúar í Grafarholti keyptu sér fasteignir í þeirri trú að þar væri rólegt hverfi fjarri skarkala borgarinnar. Með flugvelli á Hólmsheiði væru þær forsendur brostnar. Íbúar í nágrenni Reykjavíkurflugvallar vissu er þeir keyptu fasteignir sínar að völlurinn væri þar sem hann er og yrði líklega áfram, enda hafa flugvélar tekið á loft og lent á þessu svæði um langan aldur. Í þessu sambandi er vert að gefa því gaum að flugmenn hófu vélar á loft úr Vatnsmýrinni löngu áður en breska setuliðið gekk á land og árið 1939 kom fram í úttekt Reykjavíkurbæjar að Vatnsmýrin væri álitlegasta staðsetning fyrir flugvöll. Því má segja að það hafi verið gæfa Reykvíkinga að breski herinn skyldi reisa flugvöll á þessum sama stað ári síðar. Hann er sérlega vel staðsettur með tilliti til veðurfars og annarra þátta er snerta flug, en auk þess að vera miðstöð innanlandsflugs og flugs til Grænlands og Færeyja er hann varaflugvöllur fyrir millilandaflugið.Tilfinnanleg áhrif Staðsetning vallarins er einnig hentug í ljósi þess að æðstu mennta- og stjórnsýslustofnanir þjóðarinnar eru flestar í næsta nágrenni hans, auk verslana og hvers kyns þjónustu, að ekki sé minnst á aðalsjúkrahús landsins. Þá fóru 777 tonn af vörum og pósti um völlinn á síðasta ári. Ef flugvöllurinn hyrfi úr Vatnsmýri myndi flugsamgöngum hér innanlands án efa hraka og áhrifin á ferðaþjónustuna yrðu tilfinnanleg, að ekki sé minnst á fjölda starfa sem glötuðust úr borginni, starfa sem tengjast flugrekstri og flugkennslu og fylgja Reykjavíkurflugvelli. En í heildina hefur verið talið að um eitt þúsund störf fylgi vellinum og starfsemi honum tengdum. Mikil tækifæri eru fólgin í staðsetningu Reykjavíkurflugvallar, en borgir víða um heim hafa keppst við að koma sér upp flugvöllum eins nærri miðborgum og hægt er vegna þarfa viðskiptalífsins. Flugvöllurinn í London City er alveg við fjármálahverfi borgarinnar og þjónar því og þá eru flugvellir alveg við miðborgir Chicago, Toronto og San Diego svo dæmi séu nefnd. Staðsetningin í Vatnsmýri verður sífellt mikilvægari í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi, sem vonandi fær að dafna hér á komandi árum og áratugum. Ætla má að sú óvissa sem ríkt hefur um framtíð Reykjavíkurflugvallar hamli uppbyggingu frekari starfsemi, en ljóst er að sóknarfærin eru mikil, til að mynda í ljósi stóraukinna umsvifa á Grænlandi. Hljóðmengun af vellinum þyrfti ekki að aukast að ráði með auknum umsvifum enda nýjustu vélar mjög hljóðlátar, til að mynda hin nýja Airbus þota Færeyinga sem er hljóðlátari í aðflugi en Fokkerar Flugfélags Íslands. Mikilvægi vallarins fyrir reykvískt atvinnulíf er ótvírætt. Framtíðarflugvöllur í Vatnsmýri er eitt stærsta atvinnu- og samgöngumál Reykvíkinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar