Utanríkisráðherra hjólar í Þorstein Jón Júlíus Karlsson skrifar 13. nóvember 2013 15:04 Gunnar Bragi Sveinsson og Þorsteinn Pálsson. „
Þorsteinn Pálsson er um margt geðugur maður og dagsfarsprúður. Því kemur því á óvart hversu ómálefnalegur hann er orðinn þar sem hann stendur upp á kögunarhóli Fréttablaðsins, þar sem hann í þríliðu pönkast á því fólki og flokkum sem ekki vilja ganga í Evrópusambandið,“ skrifar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra á heimasíðu sinni. Gunnar Bragi vitnar í grein Þorsteins frá 2. nóvember sem birtist í Fréttablaðinu og hér á Vísi. Gunnar segir greinina ósvífna og eigi að sýna fram á að Framsókn sé „þjóðernispopulistaflokkur“. „Hvaða dónaskapur er það að telja menn einangrunarsinna fyrir að hafa þá skoðun að hagsmunum okkar sé betur borgið utan Evrópusambandsins? Ríkisstjórnin hvetur til samvinnu og aukins samstarfs við Evrópusambandið, Evrópuþjóðir, Kanada, Bandaríkin og Kína, sem og nýrrar sóknar til norðurs,“ skrifar Gunnar Bragi og telur gagnrýni Þorsteins á stefnu flokksins hvað varðar skuldaleiðréttingu ómálefnalega. „Þorsteinn vogar sér að halda því fram að það sé popúlismi að takast á við brýnasta verkefni samtímans. Það er honum til vansa. Ég hef velt því fyrir mér hvað gengur eiginlega að manninum og rifjast upp fyrir mér atburðarás sem ég heyrði talað um þegar ég var ungur maður fyrir norðan, en sem kunnugt er afgreiddi ég þar bæði bensín og mokaði skít, ef þess þurfti. Sagt var að þegar Sjálfstæðisflokkurinn skrapp úr hendi Þorsteins, eftir honum hafði reynst ofviða að stjórna ráðuneyti sem hann veitti forstöðu hafi hann kennt Framsókn um. Allir vita auðvitað að örlög Þorsteins voru í eigin hendi alltaf og sjálfstæðismenn völdu foringja sem þeir töldu sigurstranglegri, án aðkomu og afskipta fólks úr öðrum flokkum. Sagt er að Þorsteinn hafi síðan lagt fæð á framsóknarmenn. Það er tímabært fyrir Þorstein að átta sig á að það voru hans eigin flokksmenn sem höfnuðu honum, líkt og þeir hafa hafnað Evrópusambandinu.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Sjá meira