Býflugur vekja ugg í sumarbústaðahverfi Garðar Örn Úlfarsson skrifar 17. apríl 2013 07:00 Hjónin sem eiga sumarhúsið í baksýn þurfa að flytja þetta býflugnabú og annað bú sem er þar rétt hjá inn fyrir lóðarmörkin samkvæmt ákvörðun skipulagsfulltrúa. Fréttablaðið/Pjetur
Býflugnarækt sumarbústaðareigenda í Sléttuhlíð ofan Hafnarfjarðar fellur í grýttan jarðveg eigenda næstu bústaða. Hafnarfjarðarbær heimilaði hjónunum Helga Laxdal og Katrínu Árnadóttur að koma fyrir býflugnabúum í landi bæjarins rétt hjá sumarbústaðarlóð þeirra í Sléttuhlíð. Ræktunin var leyfð í september 2011 og átti leyfið að gilda í eitt ár í tilraunaskyni. Talsverður fjöldi sumarbústaða er í Sléttuhlíðarhverfinu. Samkvæmt upplýsingum frá Hafnarfjarðarbæ hafa borist ábendingar frá nágrönnum sem eru ósáttir við að býflugnabúin séu í almenningnum. Umkvartanir nágrannanna voru teknar fyrir á fundi skipulags- og byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar í síðustu viku. Ekki fæst upplýst hjá bænum hverjir það eru en samkvæmt fundargerð vilja þeir býflugurnar burt. „Kvartað er yfir ónæði frá býflugnabúi, bæði eru menn hræddir við flugurnar og eins eru sumir með ofnæmi,“ segir í fundargerðinni. „Eiganda býflugnabúsins er gert að færa búið inn á sína eigin lóð vegna þessara ábendinga,“ er niðurstaðan. Þótt sumarið sé enn nokkuð langt undan eru býflugurnar í Sléttuhlíð komnar á stjá og virtust una sér vel í vorsólinni í gær. Um er að ræða tvo klasa af búum sem standa á að giska þrjátíu metra frá mörkum lóðar sumarbústaðar Helga og Katrínar. Ekki náðist í þau Helga og Katrínu við vinnslu þessarar fréttar í gær en í leyfisumsókn þeirra frá 2011 kemur fram að þau hafi áður verið með býflugnarækt við íbúðarhús sitt. Þau vilji fjölga búunum og hafa þau á svæði þar sem ekki sé úðað með skordýraeitri. „Býflugurnar sem fluttar hafa verið hingað inn undanfarin ár eru frá Álandseyjum og eru mjög gæfar. Þær eru ekki að angra fólk nema farið sé ofan í búin þeirra. Þær fara ekki að matarborði heldur halda sig eingöngu við blómin og hafa engin óþægindi verið af þeim í garðinum hjá mér síðastliðin tvö ár,“ sagði í bréfi hjónanna sem jafnframt undirstrikuðu mikilvægi býflugna fyrir líffræðilegan fjölbreytileika: „Gera má ráð fyrir að gróðurinn í Sléttuhlíðinni muni auðgast verulega með veru býflugnanna þar.“
Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Sjá meira