Metið hvort fársjúkur svikari þoli framsal til Ungverjalands Stígur Helgason skrifar 17. apríl 2013 07:00 Kimberger líður betur í Ólafsvík en í Suður-Evrópu. Skólpmógúllinn fyrrverandi hefur þess vegna engan áhuga á að láta á það reyna hvort hann ræður við flugferðir um heiminn.Fréttablaðið/pjetur
Fársjúkur Ungverji á sjötugsaldri bíður þess nú á heimili sínu í Ólafsvík að íslensk stjórnvöld ákveði hvort hann verði framseldur til föðurlands síns. Þar á hann óafplánaðan dóm fyrir að svíkja ungverska ríkið, sem hafði borgað honum fyrir skólphreinsistörf. Ferenc Kimberger er 66 ára og hlaut árið 2010 fangelsisdóm fyrir fjársvik í viðskiptum sínum við ungverska ríkið nokkrum árum fyrr. Kimberger rak skólphreinsifyrirtæki, Mélyépszolg Kft., og fékk afnotarétt af ríkisjörðum í skiptum fyrir störf í þágu hins opinbera sem síðan voru aldrei innt af hendi. Auk þess seldi hann hluta af þessu landi, sem hann átti ekki. Refsingin sem Kimberger fékk er allt að fimm ára fangelsi, en þegar dómurinn gekk var hann hins vegar fjarstaddur. Hann var nefnilega fluttur til Íslands og sestur að í Ólafsvík á Snæfellsnesi, þar sem hann keypti sér hús fyrir nokkrum árum. Hann hefur síðan lifað á greiðslum úr ungverska velferðarkerfinu og reglulega fengið ættingja sína hingað í heimsókn. Þegar ungversk yfirvöld áttuðu sig á því að þau væru að senda dæmdum manni peninga til Íslands fóru þau að grennslast fyrir um hann og í kjölfarið handtók lögreglan á Snæfellsnesi Kimberger, yfirheyrði og fékk hann í kjölfarið úrskurðaðan í farbann. Þetta var í október í fyrra. Síðan hefur farbannið margsinnis verið framlengt, síðast ótímabundið, en Kimberger hefur aldrei mótmælt því, enda mun hann engan áhuga hafa á að fara eitt eða neitt. Fyrirtækið utan um skólphreinsunina varð gjaldþrota árið 2007. Nú er ekki nóg með að ungversk yfirvöld hafi fengið veður af því að Kimberger sé búsettur á Íslandi og vilji fá hann framseldan, heldur vill skiptastjóri þrotabúsins sömuleiðis fá hann í skýrslutöku um hina og þessa gjörninga í rekstri fyrirtækisins fyrir gjaldþrotið. Framsalsbeiðni ungversku lögreglunnar barst hingað nýlega og er nú til meðferðar í innanríkisráðuneytinu. Lögmaður Kimbergers hefur mótmælt henni og borið við mannúðarsjónarmiðum. Ástæða búferlaflutninganna, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, var nefnilega heilsufarsleg. að minnsta kosti að sögn Kimbergers sjálfs. Hann er mjög sykursjúkur og hjartveikur og flutti hingað til að komast í loftslag sem hentaði honum betur en hitinn og rakinn sunnar í Evrópu. Núorðið fer hann varla út úr húsi og greinargerð lögmanns hans til ráðuneytisins mun fylgja læknisvottorð þar sem segir afdráttarlaust að ferðalag til Ungverjalands mundi líkast til ríða fjársvikaranum að fullu. Ekki er vitað til þess að íslensk yfirvöld hafi nokkru sinni hafnað framsalsbeiðni af þessari ástæðu.
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Innlent Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Fleiri fréttir Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Quang Le fer ekki langt Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Sjá meira