Hafði glutrað niður öllum auðæfunum Guðsteinn Bjarnason skrifar 27. mars 2013 00:00 Boris Beresovskí ásamt lífvörðum sínum meðan auðæfin voru enn til staðar. nordicphotos/AFP
Boris Beresovskí fannst látinn á baðherberginu í stórhýsi sínu í Ascot á sunnanverðu Englandi síðasta laugardag. Lögreglan skýrði frá því á mánudagskvöld að banamein hans hefði verið henging. Ekki vildi hún fullyrða hvort hann hefði svipt sig lífi, en engin merki fundust um átök. Um aldamótin var hann einn auðugasti og jafnframt einn valdamesti maður Rússlands, einn af „olígörkunum“ svonefndu, fáveldiskóngunum sem röðuðu sér á jötuna hjá Boris Jeltsín forseta. Við andlátið hafði hann glutrað niður auðæfunum, var orðinn þunglyndur og vildi helst snúa aftur heim til Rússlands. Þaðan flúði hann árið 2001 í sjálfskipaða útlegð til Bretlands, eftir að hafa fallið í ónáð hjá Vladimír Pútín forseta. Hann hefur síðan óspart gagnrýnt Pútín Rússlandsforseta, meðal annars sakað hann um að hafa staðið að morðinu á Alexander Litvinenko, rússneska njósnaranum sem lést í London árið 2006 eftir að eitrað hafði verið fyrir honum með geislavirku efni. Þeir Litvinenko urðu góðir vinir eftir að Litvinenko fullyrti opinberlega að yfirmenn sínir hjá rússnesku leyniþjónustunni hefðu falið sér það verkefni að myrða Beresovskí. Litvinenko hlýddi ekki, heldur tók sér stöðu með stjórnarandstæðingum og fór að skrifa bækur um ógnarstjórn Pútíns. Beresovskí slapp nokkrum sinnum með skrekkinn þegar reynt var að ráða hann af dögum, bæði í Rússlandi og í Bretlandi. Árið 1994 var meðal annars gerð sprengjuárás á bifreið hans, sem kostaði bílstjóra hans lífið. Á síðasta ári tapaði Beresovskí dómsmáli gegn Roman Abramovitsj, öðrum rússneskum auðkýfingi í Bretlandi, eiganda fótboltaliðsins Chelsea. Dómari sagði ekkert hæft í ásökunum Beresovskís um að Abramovitsj hefði kúgað út úr honum fé.
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar eldflaugar innan nokkurra mánaða Erlent Fleiri fréttir Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar eldflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Sjá meira