Lífið

Ashley Judd í framboð

Leikkonan Ashley Judd íhugar framboð til öldungadeildar bandaríkjaþings
Leikkonan Ashley Judd íhugar framboð til öldungadeildar bandaríkjaþings .nordicphotos/getty
Leikkonan Ashley Judd er sögð íhuga framboð til öldungadeildar Bandaríkjaþings fyrir hönd demókrata, ef marka má frétt US Weekly. Hún hyggst bjóða sig fram gegn Mitch McConnell, sem er núverandi öldungadeildarþingmaður Kentucky-fylkis.

Sjónvarpsstöðin WHAS 11 segir Judd hafa snætt hádegisverð með mikilsvirtum demókrötum á fimmtudag og ýtir það enn frekar undir getgátur manna.

Judd hefur lengi verið viðriðin mannúðarstörf og stjórnmál í heimalandi sínu og er meðal annars ötull stuðningsmaður Baracks Obama.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×