Skilyrði fyrir eignarnámi ekki uppfyllt 23. febrúar 2013 08:00 Ásgerður Ragnarsdóttir
Eigendur jarða á Reykjanesi sem Landsnet hefur farið fram á að verði teknar eignarnámi furða sig á kröfunni. Landeigendur telja samninga ekki fullreynda en þeir hafa krafist þess að línan verði jarðstrengur en ekki loftlína. Landeigendur á Reykjanesi furða sig á eignarnámskröfu sem Landsnet hefur sett fram vegna ráðgerðra framkvæmda við háspennulínu á svæðinu. Þá telja þeir skilyrði fyrir eignarnámi ekki uppfyllt. „Þetta kemur í fyrsta lagi verulega á óvart. Landeigendur hafa talið að samningaviðræður standi enn yfir en eitt af grundvallarskilyrðum þess að eignarnám sé krafist er að samningar hafi verið reyndir til þrautar. Við teljum þetta skilyrði ekki uppfyllt sem og reyndar fleiri,“ segir Ásgerður Ragnarsdóttir, sem er lögmaður landeigendanna ásamt Karli Axelssyni. Þá segir Ásgerður einkennilegt að farið sé fram á eignarnám áður en tilskilin framkvæmdaleyfi frá Orkustofnun og sveitarfélögum liggja fyrir. Forsaga málsins er sú að Landsnet fór í gær fram á að tiltekin landsvæði á Reykjanesi yrðu tekin eignarnámi. Telur fyrirtækið sig ekki geta tryggt raforkuöryggi á Reykjanesi án línunnar og að samningar við nokkra landeigendur hafi siglt í strand. Landsnet hefur þegar náð samningum við eigendur 11 af 20 jörðum á svæðinu og þá standa samningar enn þá yfir við eigendur tveggja jarða. Ásgerður segir hina landeigendurna einhuga í þessari deilu og bætir við að þeir muni mótmæla eignarnámsbeiðninni. Ásgerður segir að deilan hafi meðal annars staðið um það hvort nýja línan verði loftlína eða jarðstrengur en landeigendur telja síðari kostinn hagkvæmari þegar á allt sé litið.magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fleiri fréttir Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Sjá meira