Evrópa endurmetur öryggi erfðabreyttra afurða Sandra B. Jónsdóttir skrifar 22. janúar 2013 06:00 Í ágúst sl. birti hópur vísindamanna undir forystu G.E. Séralini niðurstöður 2ja ára rannsóknar á erfðabreyttum maís sem skók vísindasamfélagið og afhjúpaði galla í kerfi leyfisveitinga til ræktunar erfðabreyttra plantna í Evrópu. Erfðabreytta maísyrkið (NK603) sem Séralini notaði hafði áður verið leyft af Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) og þar með verið talið öruggt í manneldi og fóðrun á grundvelli skammtíma (90 daga) tilrauna með rottur. Rannsókn Séralini sem stóð í 2 ár (ævilengd rottu) komst að því að rottur sem fengu erfðabreytta maísyrkið mynduðu æxli, lifðu skemur og eitrun kom fram í lifur og nýrum. EFSA hefur aldrei rökstutt hvers vegna stofnunin fer aðeins fram á að líftæknifyrirtæki leggi fram 90 daga dýratilraunir þegar ljóst má vera að langtímarannsóknir gefi réttari mynd af heilsufarsáhrifum. Enn fremur sætir EFSA harðri gagnrýni fyrir að veita leyfi fyrir erfðabreyttum afurðum (plöntum/plöntuafurðum) á grundvelli rannsókna sem umsækjendur sjálfir gera, í stað rannsókna vísindamanna sem eru óháðir viðkomandi fyrirtækjum. Ekki veldur síðri áhyggjum að nefnd „sérfræðinga“ EFSA, sem ákveður hvaða erfðabreyttar afurðir skuli samþykktar, er að meirihluta skipuð mönnum sem ýmist störfuðu í líftæknifyrirtækjum eða vinna fyrir þrýstihópa í þeirra þágu. Vegna hagsmunaárekstra innan EFSA hafa stjórnvöld nokkurra Evrópulanda kvartað við Evrópuþingið sem frestaði fjárveitingum til EFSA uns stofnunin samþykkti að taka á vandanum.Æsileg viðbrögð Þegar niðurstöður rannsóknar Séralini voru birtar ollu þær æsilegum viðbrögðum vísindamanna sem vinna í þágu líftæknifyrirtækja. EFSA fór í varnarstöðu og afneitaði rannsókninni. Hún hefði með réttu átt að auka áhuga innan vísindasamfélagsins á langtímarannsóknum heilsufarsáhrifa erfðabreyttra afurða. Gagnrýnendur sem hagsmuna eiga að gæta skipulögðu hins vegar harkalega árás á rannsóknina og aðalhöfund hennar. Mótbárur þeirra afhjúpa tvöfalt siðgæði, með fullyrðingum um galla á rannsókn Séralini, sem ýmist var horft framhjá eða réttlættir voru í umfjöllun um rannsóknir líftæknifyrirtækja. Séralini var krafinn um birtingu grunngagna rannsóknar sinnar, þótt EFSA láti fyrirtæki sem sækja um leyfi komast upp með að halda sínum gögnum leyndum. Þess var jafnvel krafist að tímaritið sem birti ritrýnda rannsókn Séralini (Food & Chemical Toxicology) drægi greinina til baka. Áköfustu gagnrýnendur voru þó ekki með sérþekkingu á eiturefnafræði eða dýratilraunum, heldur á plöntuerfðafræði og erfðatækni, vísindamenn sem eiga stofnana- og persónulegra hagsmuna að gæta. Meðal þeirra eru jafnvel „vísindamenn“ tengdir öfgafullum þrýstihópum sem afneita t.d. loftslagsbreytingum.Tímabær endurskoðun Rannsókn Séralini hratt af stað deilum sem leitt hafa til tímabærrar endurskoðunar á þeim grunni sem lagareglur ESB um erfðabreyttar afurðir byggja á. Framvegis má gera ráð fyrir að fyrirtæki sem sækja um leyfi til ræktunar á erfðabreyttum plöntum í Evrópu verði krafin um betri vísindarannsóknir til að færa sönnur á öryggi þeirra. EFSA og framkvæmdastjórn ESB hafa nú samþykkt að hanna og fjármagna nýja langtíma (2ja ára) rannsókn á heilsufarsáhrifum erfðabreyttra afurða. Hér er komið til móts við góð vísindi. Þegar vísindamaður á borð við Séralini (sem er tvímælalaust í hópi fremstu sameindalíffræðinga okkar daga) leggur fram rannsóknir, sem setja spurningamerki við ríkjandi starfshætti, er fráleitt að skella skollaeyrum við þeim, heldur ber að fylgja þeim fast eftir. Nú hvílir sú skylda á yfirvöldum ESB að hanna nýjar tilraunir með aðkomu sjálfstæðra vísindamanna eins og Séralini, en ekki aðeins þeirra sem starfa í líftæknifyrirtækjum. Við væntum þess að íslensk yfirvöld fari að fordæmi EFSA. Umhverfisstofnun hefur allt frá árinu 2003 leyft útiræktun á erfðabreyttum plöntum sem áhættusamastar eru – erfðabreyttu lyfjabyggi – á allt að tugum hektara lands í Gunnarsholti. Þeir sem þróa þetta erfðabreytta bygg, svo og yfirvöld, hafa fullyrt að sýnt hafi verið vísindalega fram á öryggi þess þrátt fyrir að engar dýratilraunir hafi verið gerðar og áhættumat hafi ekki falið í sér greiningar á grunnvatni og jarðvegi. Svo virðist sem veiting þessara leyfa hafi verið af pólitískum toga – en ekki vísindalegum. Slæmar pólitískar ákvarðanir er stundum hægt að draga til baka og vonandi verður það gert í þessu tilviki. En tjón á trúverðugleika vísindasamfélagsins er ekki jafn auðvelt að bæta. Íslenska vísindasamfélagið þarf að viðurkenna, líkt og EFSA neyddist til, að ekki er nóg að lýsa eitthvað öruggt, heldur þarf að sýna fram á að svo sé. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Áskrift í sund á verði Netflix Kristinn Jón Ólafsson Skoðun Viska stéttarfélag: Sameinuð og skynsöm rödd til framtíðar Sigrún Einarsdóttir Skoðun Ælt við dæluna Þorsteinn Sæmundsson Skoðun Íbúasamráð í sveitarfélögum Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Vill meirihlutinn í Reykjavíkurborg ekki hlusta á íbúa? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson Skoðun Fyrir enn betri Akureyrarbæ Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Andstaðan við að tryggja að neytendur fái lækkun við dælu Þórður Snær Júlíusson Skoðun Sólveig Anna um stöðu verkafólks innan eða utan ESB Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Vill meirihlutinn í Reykjavíkurborg ekki hlusta á íbúa? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íbúasamráð í sveitarfélögum Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Raunverulegt val fyrir foreldra í Hafnarfirði Signý Jóna Tryggvadóttir skrifar Skoðun Þröngt mega sáttir? Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Ungt fólk, sjávarútvegur og framtíð íslensks efnahagslífs Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ælt við dæluna Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Sólveig Anna um stöðu verkafólks innan eða utan ESB Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þurfum við ný lyf? Ragnhildur Reynisdóttir skrifar Skoðun Treður hið opinbera sér í hleðslugatið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Það þarf kjark til að byggja bæ til framtíðar - Kópavogur er í sókn Leifur Andri Leifsson skrifar Skoðun Viska stéttarfélag: Sameinuð og skynsöm rödd til framtíðar Sigrún Einarsdóttir skrifar Skoðun Fyrir enn betri Akureyrarbæ Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Áskrift í sund á verði Netflix Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Kvíðakast einstæðingsins Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Hvað ætlar Akureyri að verða þegar hún verður stór? Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Fjarðarheiðargöng og lenging flugbrautar á Egilsstöðum eru þjóðaröryggismál Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Andstaðan við að tryggja að neytendur fái lækkun við dælu Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í sókn með skýra sýn og hlýja forystu Alexander M Árnason skrifar Skoðun Þegar við lærum að þóknast – og gleymum sjálfum okkur Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir,Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason,Hrafn Loftsson,Stefán Ólafsson,Kristinn R. Þórisson,Hannes Högni Vilhjálmsson,Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Þegar öldrun birtist okkur eins og hún er Berglind Indriðadóttir skrifar Skoðun Klárum verkin fyrir börnin og íþróttafólkið okkar Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir,Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifar Skoðun Ég skildi ekki Íslendinga fyrst Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Stöðu minnar vegna Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Enn eitt neyðarkall Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason skrifar Sjá meira
Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun
Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar
Skoðun Það þarf kjark til að byggja bæ til framtíðar - Kópavogur er í sókn Leifur Andri Leifsson skrifar
Skoðun Fjarðarheiðargöng og lenging flugbrautar á Egilsstöðum eru þjóðaröryggismál Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir,Davíð Arnar Stefánsson skrifar
Skoðun Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason,Hrafn Loftsson,Stefán Ólafsson,Kristinn R. Þórisson,Hannes Högni Vilhjálmsson,Henning Arnór Úlfarsson skrifar
Skoðun Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir,Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifar
Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun
Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson Skoðun