Lögreglukonur reiðar vegna tölfræðisamantektar um jafnréttismál Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 10. október 2013 14:21 Eyrún Eyþórsdóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, vill sjá hag lögreglukvenna bættan.
Eyrún Eyþórsdóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, gerir alvarlegar athugasemdir við samantekt Ríkislögreglustjóra um jafnréttismál innan lögreglunnar. Hún segir tölfræði embættisins setta fram með villandi hætti til að fegra hlut lögreglukvenna, sem sé alls ekki fagur. „Við lögreglukonur sem höfum verið að tala fyrir bættri stöðu lögreglukvenna erum reiðar. Við teljum að þarna sé verið að varpa fram tölfræði sem lítur vel út en er bara alls ekki rétt tölfræði um hlut kynjanna“ segir Eyrún í samtali við Vísi. Vísir birti í gær frétt um samantekt Ríkislögreglustjóra um jafnréttismál lögreglu fyrir árið 2012. Samkvæmt samantektinni frá Ríkislögreglustjóra er hlutfall kvenna tæp 16% í stjórnun og stefnumótum (yfirstjórn) embættisins. Hæst er hlutfallið hjá embætti Suðurnesja eða tæpur þriðjungur (29%) og næst hæst hjá embætti ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða 25%. Hjá hinum embættunum sem tekin var tölfræði yfir situr engin kona í yfirstjórn embættis. Eyrún segir sumar þessara talna einfaldlega rangar. Hún vill meina að þegar betur er rýnt í samantektina megi sjá að allar upplýsingar um starfsmenn nái bæði yfir borgaralega starfsmenn og lögreglumenn. Það þýði að ekki sé aðeins verið að skoða hlut lögreglukvenna heldur einnig allra þeirra starfsmanna sem starfa hjá lögregluembættum um land allt, eins og skrifstofufólk og aðra borgaralega starfsmenn sem ekki hafi lögregluvald. „Sannleikurinn er sá að hjá Ríkislögreglustjóra er engin lögreglukona í yfirstjórn og hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu er heldur engin lögreglukona í yfirstjórn. Hins vegar er mikið gert úr háu hlutfalli kvenna í lögreglufulltrúastöðum, eins og minni, en slíkir starfsmenn hafa ekkert stjórnunarvald eða mannaforráð. Við fögnum því auðvitað að það séu fleiri konur í stjórnunarstörfum hjá lögreglunni en við viljum sjá lögreglukonur ná frekari frama innan lögreglunnar.“
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Sjá meira