Beinkonbræðaralagið safnaði tveimur milljónum Jón Júlíus Karlsson skrifar 10. október 2013 15:39 Beikonbræðralagið með forsætisráðherra í haust. Mynd/Beikonbræðaralagið.
Aðstandendur hátíðarinnar Reykjavík Bacon Festival, sem fram fór 7. september síðastliðinn, söfnuðu tveimur milljónum króna sem renna til Landspítalans. Hátíðin tókst vonum framar en um 25 þúsund manns heimsóttu hátíðina. Fjárhæðin sem safnaðist mun renna til kaupa á tveimur þráðlausum hjartasíritum sem verða afhent hjartadeild Landspítalans við formlega athöfn síðar í þessum mánuði. „Við í Beikonbræðralaginu viljum sýna hjartadeildinni og öllu því frábæra starfsfólki sem þar vinnur þakklæti fyrir gott starf við afar erfiðar aðstæður á tímum niðurskurðar. Við viljum þakka styrktaraðilum okkar fyrir veittan stuðning og ekki síst þeim fjölmörgu veitingastöðum sem tóku þátt í þessu með okkur. Án þeirra aðkomu hefði hátíðin ekki orðið að veruleika en einnig viljum við þakka íslensku þjóðinni fyrir að koma á hátíðina og leggja málefninu lið,” segir Ragnar Þór Ingólfsson beikonbróðir.Vantar sextán hjartasírita Bylgja Kærnested hjúkrunardeildarstjóri Hjartadeildar Landspítalans segir búnaðinn koma sér vel. „Þetta er mikilvægur búnaður og kemur sér því afar vel. Hjartadeild hefur ekki farið varhluta af þeim mikla niðurskurði sem hefur verið á spítalanum síðastliðinn ár,” segir Bylgja. Á deildina leggjast inn um 2000 hjartasjúklingar á hverju ári og meðal legutími þeirra er aðeins 5,5 dagar. Þeir sjúklingar sem leggjast inn á hjartadeildina eru oft mjög veikir og þurfa að vera undir stöðugu eftirliti meðal annars í svokölluðum hjartasíritum. Þeir sjúklingar sem ekki lengur eru rúmfastir en þurfa engu að síður að vera tengdir við hjartasírita eru tengdir við þráðlaus tæki og geta farið aðeins fram úr rúmi. Þetta er mikilvægt skref í meðferð sjúklinganna og er geysilega mikið notað. Á vel flestum hjartadeildum erlendis er slíkt tæki við öll rúmstæði sjúklinga en svo er ekki hér. „Við höfum aðeins sextán þráðlaus tæki, sem sum eru komin til ára sinna þó þörfin sé mun meiri en deildin rúmar þrjátíu og tvo sjúklinga. Skortur á þráðlausum hjartasíritum verður því stundum til þess að sjúklingar eru rúmfastir lengur en þeir þurfa sem er ekki æskilegt. Kostnaður við hvert þráðlaust tæki er kr. 1.014.650,- og vantar okkur því sextán til viðbótar ef vel ætti að vera,” segir Bylgja. Beikonbræðralagið skorar á fyrirtæki og félagasamtök að leggja þessu málefni lið. „Með samstilltu átaki tekst okkur að fjármagna kaup á þeim fjórtan tækjum sem eftir standa af þeim sextán sem hjartadeildinni nauðsynlega vantar. Við skorum á aflögufær fyrirtæki að gefa að minnsta kosti eitt tæki hvert, þangað til markmiðinu er náð fyrir hjartadeild Landspítalans”, segir Ragnar Þór.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira