Þorbjörg Helga í oddvitaslag í borginni Þorbjörn Þórðarson skrifar 10. október 2013 18:44
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningar næsta vor. Hún hyggst leggja höfuðáherslu á fjármál borgarinnar og menntamál. Þorbjörg Helga er 41 árs gömul og með meistarapróf í námssálarfræði frá University of Washington og hefur verið borgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 2006. „Ég held að næstu fjögur árin í borginni snúist um forgangsröðun fjármála og ég lít þannig á að það sé aðeins tímaspursmál hvenær skólakerfið verður komið á sama stað og heilbrigðiskerfið okkar er á núna og það er frekar mikil áskorun sem ég er reiðubúin að leiða. Ég hef mikla þekkingu á skólamálum en rúmlega helmingur tekna borgarinnar fer til þess málaflokks,“ segir Þorbjörg Helga. Skiptar skoðanir eru meðal sitjandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um framtíð flugvallarins í Vatnsmýri. Þorbjörg Helga studdi líkt og meirihluti sjálfstæðismanna í borgarstjórn nýtt aðalskipulag sem gerir ráð fyrir að annarri af tveimur flugbrautum verði lokað árið 2016 og hinni 2024. „Ég vil byggja í Vatnsmýri og að flugvöllurinn fari til lengri tíma litið,“ segir Þorbjörg Helga. Hún segir hins vegar ekki raunhæft að flugvöllurinn fari innan þess tíma sem hefur verið markaður fyrr en fyrir liggi raunhæf lausn fyrir innanlandsflugið og að tíminn verði nýttur vel til að skoða þá valkosti sem eru í boði. Það stefnir allt í harðan slag um oddvitasætið hjá sjálfstæðismönnum í borginni því auk Þorbjargar Helgu hefur Júlíus Vífill Ingvarsson ákveðið að gefa kost á sér í oddvitasætið og þá íhuga Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi og Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga að gera slíkt hið sama. Júlíus Vífill og Kjartan hafa báðir verið borgarfulltrúar um árabil líkt og Þorbjörg Helga, en Halldór kæmi nýr inn. Hann flutti nýlega til Reykjavíkur en var búsettur á Ísafirði þar sem hann var bæjarstjóri um ellefu ára skeið. Prófkjörið verður hinn 16. nóvember næstkomandi.
Mest lesið Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Innlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Innlent Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Innlent Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Innlent B sé ekki best Innlent Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Innlent Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Erlent Fleiri fréttir Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB B sé ekki best Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Bráðabirgðaheimild veitt fyrir Hvammsvirkjun Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Bílastæðamál, POTS, ókyrrð og íslenski hesturinn Engin byssa reyndist vera í bílnum Sjá meira