Eini bikarinn sem Bjarni hefur ekki lyft Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2013 16:30 Bjarni Guðjónsson lyftir hér Íslandsbikarnum haustið 2011. Mynd/Daníel
KR-ingar eiga enn eftir að vinna Reykjavíkurmeistaratitil karla í fótbolta undir stjórn Rúnars Kristinssonar en í gær töpuðu þeir þriðja árið í röð í úrslitaleik keppninnar. Leiknir varð þá Reykjavíkurmeistari í fyrsta sinn eftir 3-2 sigur á KR í Egilshöllinni. KR tapaði 0-5 fyrir Fram í úrslitaleiknum 2011 og 0-1 fyrir Val í úrslitaleiknum 2010. Bæði árin boðaði þetta gott fyrir KR um sumarið því KR varð Íslands- og bikarmeistari sumarið 2011 og svo bikarmeistari í fyrra. Nú er staðan hinsvegar sú að Reykjavíkurmeistarabikarinn er nú eini bikarinn sem Bjarni Guðjónson hefur ekki lyft síðan að hann tók við fyrirliðabandinu í Vesturbænum og jafnframt eini bikarinn sem KR-liðið hefur ekki unnið undir stjórn Rúnars Kristinssonar. Rúnar Kristinsson stjórnaði liði KR reyndar ekki í gær heldur Pétur Pétursson. Rúnar var staddur á þjálfaranámskeiði í Englandi. Bjarni Guðjónsson varð Reykjavíkurmeistari með KR 2009 og 2010 en ekki sem fyrirliði. Grétar Sigfinnur Sigurðarson lyfti Reykjavíkurmeistarabikarnum síðast þegar KR vann hann 2010 og árið áður hafði Jónas Guðni Sævarsson tekið við honum. Bjarni spilaði báða þessa úrslitaleiki. Bjarni tók hinsvegar við Íslandsbikarnum 2011, bikarnum 2011 og 2012, deildarbikarnum 2010 og 2012 og bikarnum fyrir sigur í Meistarakeppni KSÍ 2012. Það er því bara einn bikar sem Bjarni hefur ekki náð að lyfta sem fyrirliði KR.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira