Innlent

Lögðu hald á annan tug kílóa af kannabisefnum

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Þrír karlar á fertugsaldri voru handteknir í þágu rannsóknarinnar.
Þrír karlar á fertugsaldri voru handteknir í þágu rannsóknarinnar. mynd/stefán
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á annan tug kílóa af kannabisefnum við húsleit í Mosfellsbæ í gær, en hluta efnanna var búið að pakka í sölueiningar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Þá tók lögregla líka í sína vörslu töluvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Þrír karlar á fertugsaldri voru handteknir í þágu rannsóknarinnar, en málið telst nú upplýst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×