Draga fram það besta í fólkinu Gunnar Leó Pálsson skrifar 29. nóvember 2013 09:30 Gabríel, Daníel og Andri eru mennirnir á bak við Karma. Fréttablaðið/Stefán „
Markmiðið okkar er að draga fram það besta í öllum einstaklingum með því að standa fyrir frumlegum og skapandi góðgerðum,“ segir Gabríel Þór Bjarnason sem situr í stjórn nýja góðgerðarfélagsins Karma, ásamt Daníel Ólafssyni og Andra Erni Gunnarssyni. Karma er einstakt félag sem einblínir ekki á eitt málefni heldur ætlar sér að starfa með öðrum góðgerðarfélögum til að efla góðgerðir enn frekar. „Við ætlum að nýta alla nýjustu tæknina til góðgerða eins og Facebook, Instragram og annars konar hugbúnaðarlausna,“ útskýrir Gabríel Þór. Fyrsta átak Karma kallast Kýlum á það! „Við ætlum að styrkja Kvennaathvarfið með ýmsum hætti í mánuðinum.“ Fyrsti hluti átaksins fer fram í Kringlunni næstkomandi laugardag. „Við verðum með bás þar sem við seljum nælur, auk þess sem við bjóðum fólki að gerast mánaðarlegir styrktaraðilar Kvennaathvarfsins,“ bætir Gabríel Þór við. Gagnsæi er eitt af lykilatriðum í góðgerðarstarfsemi sem þessari. „Ég minnist alltaf á gagnsæi þegar ég er í samskiptum við samstarfsaðila. Við erum í hundrað prósent samstarfi við Kvennaathvarfið og á öllum viðburðum verður hagsmunafulltrúi frá athvarfinu til að sjá um allt reiðufé.“ Í desember verður ýmislegt í gangi hjá Karma. „Við erum með Instagramleik þar sem við hvetjum fólk til að gera eitthvað fallegt fyrir maka, börn og- eða fjölskyldu og hashtaga #heimilisast. Þá fara þátttakendur í pott og við drögum út fallegasta gjörninginn 7. 14. og 21. desember en vinningarnir eru í veglegri kantinum.“ Einnig verður boðin upp árituð treyja frá íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu og svo mun Eva Laufey Kjaran töfra fram alíslenska kjötsúpu sem seld verður fyrir utan Mál og Menningu á Laugaveginu á Þorláksmessu. Það má lesa nánar um Karma hér.
Mest lesið Júnía Lín komin í milljónaklúbbinn Lífið „Eins nakin og ég kemst upp með“ Tíska og hönnun Slíðruðu sverðin á árshátíð borgarstjórnar Lífið Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Tónlist „Besti tími lífs míns hingað til“ Lífið Tvö ár af ást hjá Charlie og Laufeyju Lífið Ragnheiður fékk heilablóðfall á Spáni Lífið Hailey Bieber slær í gegn á þvengnum Tíska og hönnun Diddy selur svörtu einkaþotuna Lífið „Minnstur aldursmunur á okkur af öllum pörum“ Lífið Fleiri fréttir Innflytjendamálin eru fíllinn í stofunni Júnía Lín komin í milljónaklúbbinn Skóli við rætur Vatnajökuls Faðir Dilberts allur Tvö ár af ást hjá Charlie og Laufeyju Slíðruðu sverðin á árshátíð borgarstjórnar Diddy selur svörtu einkaþotuna Gummi Tóta og Guðbjörg eiga von á öðru barni Ragnheiður fékk heilablóðfall á Spáni „Hvaða rugl er þetta?“ „Besti tími lífs míns hingað til“ Spá Ísrael sigri marga mánuði fram í tímann „Minnstur aldursmunur á okkur af öllum pörum“ Fannar og Jói böðuðu hvor annan Fjölmenni í Tene-afmæli Gurrýjar en enga Sólrúnu Diego að sjá „Litlu kóngarnir“ sjaldan verið heitari Þessi nældu sér í verðlaun á Golden Globe „Á Íslandi eru konur hvattar til að dreyma og vera í forystu“ Stjörnulífið: Ár gellunnar Hús Björns og Hafdísar það dýrasta sem hefur verið selt Fresta tökum á Love Island All Stars Finnur fyrsti óperustjórinn Þegar miðborgin stóð í ljósum logum Sjá Jón Kára sem barn með óendanlega möguleika Krakkatía vikunnar: Borgarstjóri, Stubbarnir og handbolti Bob Weir látinn Stóru spurningunni um dularfullt slys enn ósvarað Minnast Magnúsar Eiríkssonar: „Góða ferð, elsku vinur“ Fréttatía vikunnar: Björk, EM í handbolta og Alvotech RÚV hættir við Söngvakeppnina Sjá meira