Hraunavinir skora á almenning að ganga til mótmæla Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 30. október 2013 23:28 Hraunavinir standa hér fyrir framan vinnuvélarnar á Gálgahrauni. Fréttablaðið/GVA
Umhverfisverndunarsinnarnir Hraunavinir eru hvergi nærri af baki dottnir í baráttu sinni um Gálgahraunið. Nú skorar hópurinn á almenning að fjölmenna til mótmæla í Gálgahraunið á morgun klukkan 12.30. Að sjálfsögðu snúa mótmælin að því að andæfa eyðileggingu hraunsins og segja Hraunavinir í yfirlýsingu um efnið að fólk þurfi að sjá eyðilegginguna sem fer nú fram á svæðinu. „Nú er að duga eða drepast,“ segir jafnframt í tilkynningunni. „Ljóst er að einn af þeim stöðum sem fer undir veginn er álfakletturinn Ófeigskirkja.“ Í tilkynningunni er vísað í Ófeigskirkju sem tákns í baráttunni. „Loforð um að þyrma honum verða svikin,“ segja Hraunavinir. „Við töpuðum orrustu þann 21. október. En við getum unnið stríðið. Nú er að dreifa þessari áskorun á póstlistum, heimasíðum og facebook.“ Hraunavinir hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu vegna mótmæla sinna. Það vakti mikla athygli er sjónvarpsmaður í hópnum, Ómar Ragnarsson, ásamt fleirum var handtekinn og sögðu sig hafa verið beitta ofbeldi af yfirvaldinu í atganginum. Framkvæmdirnar í Gálgahrauni hafa verið kallaðar óbætanlegt skemmdarverk.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Fleiri fréttir „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Sjá meira