Skora á forsvarsmenn atvinnulífsins og Seðlabankastjóra að gefa hluta launa sinna Gissur Sigurðsson skrifar 8. nóvember 2013 07:30 Mynd/Daníel
Framsýn-stéttarfélag, skorar á Seðlabankastjóra, forsvarsmenn atvinnulífsins og þá sem talað hafa gegn hógværum kröfum um hækkun lágmarkslauna, sem nú eru tæp 192 þúsund krónur á mánuði, að gefa þann hlut af launum sínum, sem er umfram þá upphæð, til góðgerðarmála fyrir jólin. Þannig geti þeir slegið tvær flugur í einu höggi, látið gott af sér leiða til fjölskyldna sem eiga í miklum fjárhagsvanda, og kynnst því hvernig það er raunverulega fyrir verkafólk að búa við það hlutskipti að ná ekki endum saman. Ályktunin er svohljóðandi: "Framsýn, stéttarfélag styður kröfugerð Starfsgreinasambands Íslands þar sem sérstök áhersla er lögð á hækkun lægstu launa um kr. 20.000,- á mánuði í skammtímasamningi. Verði krafan samþykkt af Samtökum atvinnulífsins tekst loksins að lyfta verkafólki upp fyrir kr. 200.000,- sem er löngu tímabært en lægstu launin í dag eru kr. 191.752,- á mánuði. Samkvæmt ályktun 4. þings Starfsgreinasambands Íslands er verkafólk tilbúið að berjast fyrir þessari kröfu en þar segir: „Barist verður af alefli fyrir því að lagfæra kjör verkafólks svo um munar í komandi kjarasamningum!“ Framsýn skorar á Seðlabankastjóra, forsvarsmenn atvinnulífsins og þá sem talað hafa gegn þessum hógværu kröfum Starfsgreinasambandsins að gefa þann hluta af launum sínum sem er umfram kr. 191.752,- á mánuði til góðgerðamála fyrir jólin. Þannig geta þeir slegið tvær flugur í einu höggi, látið gott af sér leiða til fjölskyldna sem eiga í miklum fjárhagslegum vanda auk þess að kynnast því hvernig það er fyrir verkafólk að búa við það hlutskipti að ná ekki endum saman svo mánuðum og árum skiptir á lægstu kauptöxtum. Menn þurfa nefnilega að lifa í raunveruleikanum til að geta áttað sig á stöðunni. Raunveruleikinn snýst ekki um exel skjal á borði Seðlabankastjóra, Samtaka atvinnulífsins eða greiningadeilda bankanna. Raunveruleikinn snýst um fólk sem þrátt fyrir að vinna fulla vinnu, yfirvinnu og aðra aukavinnu nær ekki endum saman. Íslenskt verkafólk er ekki tilbúið í enn eitt „Vopnahléið“ meðan aðrir skammta sér vel á diskana og ætla þeim sem minnst hafa að hirða upp brauðmolana. Sá tími er löngu liðinn."
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Sjá meira